Mikill laxadauði eftir þörungablóma

Sjókvíaeldi á laxi í Loch Duich i Skotlandi. Mynd úr …
Sjókvíaeldi á laxi í Loch Duich i Skotlandi. Mynd úr safni.

Talið er að fleiri þúsund lax­ar séu dauðir eft­ir að þör­unga­blómi varð í skoska firðinum Loch Fyne. Lax­eld­is­fyr­ir­tækið Scott­ish Salmon Comp­any, sem rek­ur eldi í firðinum, seg­ist telja að blóm­inn hafi orðið vegna hlý­inda á svæðinu und­an­farna daga.

Greint er frá laxa­dauðanum á vef BBC og seg­ir þar að flutn­inga­bíl­ar hafi flutt það sem talið er að hafi verið hundruð tonna af dauðum fiski til urðunar.

Í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu kem­ur fram að nátt­úru­leg­ar áskor­an­ir sem þess­ar séu óumflýj­an­leg­ar, en gerðar séu mikl­ar ráðstaf­an­ir til að vernda lax­ana.

mbl.is