Helmingur mótfallinn þriðja orkupakkanum

Stærsti hópurinn, eða 36,3%, segist ekki vita hvort hann sé …
Stærsti hópurinn, eða 36,3%, segist ekki vita hvort hann sé hlynntur eða andvígur orkupakkanum. mbl.is/​Hari

Tæp­ur helm­ing­ur þeirra sem taka af­stöðu í nýrri könn­un Zenter-rann­sókna er mót­fall­inn því að þriðji orkupakk­inn verði samþykkt­ur á Alþingi. Sam­kvæmt könn­un­inni sem gerð var fyr­ir Frétta­blaðið og fjallað er um í blaðinu eru 48,7% þeirra sem tóku af­stöðu mót­fall­in samþykkt þriðja orkupakk­ans, 29,6% eru hlynnt því og 21,7% hlut­laus.

Eru þetta svipaðar niður­stöður og úr könn­un Zenter í des­em­ber í fyrra.

Þegar svör allra eru skoðuð kem­ur í ljós að stærsti hóp­ur­inn, eða 36,3%, seg­ist ekki vita hvort hann sé hlynnt­ur eða and­víg­ur orkupakk­an­um. 30,5% eru and­víg, 18,5% hlynnt, 13,6% hlut­laus og rúmt 1% vildi ekki svara.

Er spurt var hversu vel eða illa fólk hefði kynnt sér þriðja orkupakk­ann sagðist tæp­ur þriðjung­ur, eða 32,1%, ekki hafa kynnt sér hann, 26,5% sögðust hafa kynnt sér hann illa. 22,2% kváðust hafa kynnt sér orkupakk­ann vel og 19,2% sögðust hvorki hafa kynnt sér hann vel né illa.

Þá eykst stuðning­ur við samþykkt þriðja orkupakk­ans eft­ir því sem fólk hef­ur kynnt sér málið bet­ur. Sögðust þannig 46% þeirra sem höfðu kynnt sér málið vel vera hlynnt samþykkt.

mbl.is