Háskólinn í Reykjavík stendur fyrir fundi um réttarstöðu þolenda kynferðisofbeldis í dag frá 13:30 til 17. Þar verður meðal annars kynnt ný skýrsla um stöðu brotaþola á Norðurlöndunum, ásamt tillögum um breytta réttarstöðu brotaþola á Íslandi. Skýrslan er unnin af Hildi Fjólu Antonsdóttur, doktorsnema í réttarfélagsfræði við Háskólann í Lundi. Einnig verður fjallað um breytingar á meðferð kynferðisbrota sem nú standa yfir í tengslum við aðgerðaáætlun dómsmálaráðuneytisins og aðra stefnumótun á vettvangi stjórnvalda.
Hægt er að fylgjast með útsendingu frá fundinum hér að neðan.
Í pallborði í lok fundar sitja fræðimenn, fagaðilar úr réttarvörslukerfinu og fagaðilar sem vinna með brotaþolum, auk baráttukvenna sem hafa beina reynslu sem brotaþolar.
Dagskrá
13.30 Setning
- Fundarstjóri setur ráðstefnuna.
13.40 Ávarp
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir dómsmálaráðherra.
13.50 Réttlát málsmeðferð með tilliti til þolenda kynferðisbrota
- Hildur Fjóla Antonsdóttir, skýrsluhöfundur og
doktorsnemi í réttarfélagsfræði.
14.30 Áfallamiðað refsivörslukerfi?
- Svala Ísfeld Ólafsdóttir, sérfræðingur í dómsmála-
ráðuneytinu og dósent við lagadeild HR.
14.50 Kaffihlé
15.10 Pallborðsumræður
Dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, dósent við sálfræðideild HR, Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, Berglind Eyjólfsdóttir, lögreglukona í Bjarkarhlíð, Agnes Björg Tryggvadóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði og teymisstjóri áfallateymis Landspítala, Elva Dögg Ásu- og Kristinsdóttir réttargæslumaður, Símon Sigvaldason, dómstjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur, og Linda Björg Guðmundsdóttir og Elín Hulda Harðardóttir, brotaþolar og baráttukonur.
17.00 Ráðstefnuslit
Fundarstjóri: Halla Gunnarsdóttir, formaður stýrihóps um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðisofbeldi og ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum.