Hafna stöðvun framkvæmda við laxeldi

Úrskurðarnefnd stöðvar ekki útsetningu laxaseiða í Berufirði og Fáskrúðsfirði samkvæmt …
Úrskurðarnefnd stöðvar ekki útsetningu laxaseiða í Berufirði og Fáskrúðsfirði samkvæmt nýjum leyfum Fiskeldis Austfjarða. mbl.is/Helgi Bjarnason

Úrsk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála hafn­ar kröf­um um­hverf­is­vernd­ar­sam­taka og veiðifé­laga um að réttaráhrif­um nýrra starfs- og rekstr­ar­leyfa Fisk­eld­is Aust­fjarða verði frestað eða fram­kvæmd­ir stöðvaðar.

Tel­ur nefnd­in ekki for­send­ur til að beita þess­um ákvæðum í þess­um til­vik­um.

Um­hverf­is­stofn­un veitti Fisk­eldi Aust­fjarða starfs­leyfi til eld­is á 9.800 tonn­um af laxi á ári í sjókví­um í Beruf­irði og 11 þúsund tonn­um í Fá­skrúðsfirði, þó þannig að hluti eld­is­fisks­ins verði ófrjór. Mat­væla­stofn­un veitt rekstr­ar­leyfi fyr­ir sama eldi.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: