Orkupakkinn ræddur aðra nóttina í röð

Stein­grím­ur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, sleit þing­fundi klukk­an 5:42 í …
Stein­grím­ur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, sleit þing­fundi klukk­an 5:42 í morg­un en þá hafði verið rætt um þriðja orkupakk­ann síðan um miðjan dag í gær. Umræðan hófst að nýju um klukkan 14 í dag og stendur enn. Það stefnir því í aðra langa nótt á Alþingi. mbl.is/Hari

Þing­fund­ur stend­ur enn yfir á Alþingi þar sem fram fer síðari umræða um þriðja orkupakk­ann svo­nefnda.

Þing­fund­ur hófst klukk­an 13.30. Störf þings­ins voru fyrst á dag­skrá, svo kosn­ing í stjórn Nátt­úru­ham­fara­trygg­inga Íslands og um 14.15 hófst umræða um orkupakk­ann.

Líkt og í gær er mæl­enda­skrá­in nær ein­göngu skipuð þing­mönn­um Miðflokks­ins. Í gær­kvöldi og nótt stigu þing­menn alls 287 sinn­um í pontu til að flytja ræður og svör í tengsl­um við aðra umræðu um þriðja orkupakk­ann svo­nefnda. Umræða um orkupakk­ann hófst klukk­an 17.43 í gær­dag og var haldið áfram, með hálf­tíma hléi, þar til þing­fundi var slitið klukk­an 5.42 í morg­un. Þá hafði umræðan staðið í tólf tíma.

Útlit er fyr­ir að leik­ur­inn verði end­ur­tek­inn í nótt. Rétt fyr­ir miðnætti voru sex þing­menn Miðflokks­ins á mæl­enda­skrá, þar á meðal Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son sem er í þann mund að hefja sína tí­undu ræðu um þriðja orkupakk­ann.

At­kvæðagreiðsla um þings­álykt­un­ar­til­lög­una um inn­leiðingu þriðja orkupakk­ans verður mögu­leg þegar síðari umræðu lýk­ur. Hvenær það verður á hins veg­ar eft­ir að koma í ljós. 

mbl.is