Fyrstu seiðin í sjó í Patreksfirði

Arnarnesið nýja í Patreksfjarðarhöfn. Fjórir Patreksfirðingar hafa verið ráðnir til …
Arnarnesið nýja í Patreksfjarðarhöfn. Fjórir Patreksfirðingar hafa verið ráðnir til starfa í tengslum við eldið í firðinum.

Fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Arctic Fish hef­ur hafið lax­eldi í Pat­reks­firði, rúmu hálfu ári eft­ir að áformin komust í upp­nám þegar úr­sk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála svipti fyr­ir­tækið þeim rekstr­ar- og starfs­leyf­um sem tengd­ust eld­inu.

Eng­in seiði voru kom­in í sjó þegar fyr­ir­tækið var svipt leyf­un­um, en allt var þó til reiðu svo að hægt væri að hefja eldi, seg­ir Sig­urður Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri viðskiptaþró­un­ar hjá Arctic Fish.

„En í ljósi þeirr­ar óvissu sem fylgdi leyf­is­svipt­ing­unni þá ákváðum við að láta reyna á það að ala stærri fisk til út­setn­ing­ar í sjó,“ seg­ir hann í sam­tali við 200 míl­ur.

Fyr­ir­tæk­in fengu síðar bráðabirgðal­eyfi sam­kvæmt ákvörðun ráðherra, en það er fyrst nú sem seiðin fara loks í sjókví­arn­ar. Spurður hvenær megi því bú­ast við að þess­um fisk­um verði slátrað seg­ir Sig­urður að slátrun gæti haf­ist fyr­ir lok næsta árs.

Sigurður segir að sér lítist vel á álit Skipulagsstofnunar.
Sig­urður seg­ir að sér lít­ist vel á álit Skipu­lags­stofn­un­ar.

Slátrun sex mánuðum fyrr?

„Yf­ir­leitt eru fisk­arn­ir um 24 mánuði í sjó en það stysta sem hef­ur liðið frá út­setn­ingu til slátr­un­ar eru um sex­tán til átján mánuðir. Nú gæt­um við verið að horfa fram á um fjór­tán til sex­tán mánuði í sjó, þó þetta fari auðvitað að miklu leyti eft­ir Móður nátt­úru. Við gæt­um þannig ef til vill náð slátrun um sex mánuðum fyrr en ella.“

Fjór­ir Pat­reks­firðing­ar hafa verið ráðnir til starfa hjá Arctic Fish vegna eld­is­ins í firðinum. Er heild­ar­fjöldi starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins á Vest­fjörðum því kom­inn á sjötta tug.

„At­vinnu­upp­bygg­ing­in hér fyr­ir vest­an held­ur því áfram.“

Skipu­lags­stofn­un birti á mánu­dag álit sitt um áform Arctic Fish um fram­leiðslu­aukn­ingu í Pat­reks­firði og Tálknafirði. Seg­ist stofn­un­in telja að efni séu til að kveða á um að aukn­ing­in verði fram­kvæmd í áföng­um. Fram­leiðslan verði þannig auk­in í skref­um og reynsla af starf­sem­inni og niður­stöður vökt­un­ar muni stýra ákvörðunum um að auka fram­leiðslu frek­ar.

Innt­ur eft­ir viðbrögðum seg­ir Sig­urður að sér lít­ist vel á álitið. „Við erum sátt við þetta og þetta er í takti við þá vinnu sem við höf­um verið að gera. Við höf­um verið að byggja okk­ar eldi upp hægt og bít­andi frá ár­inu 2009 og það er sú aðferð sem við telj­um besta, svo að þetta álit rím­ar vel við okk­ar áform.“

Nán­ari um­fjöll­un birt­ist í ViðskiptaMogg­an­um sem fylgdi Morg­un­blaðinu í gær, miðviku­dag.

Þessi grein birt­ist
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Þessi grein birt­ist
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: