Elle Fanning þykir ein best klædda leikkonan á kvikmyndahátíðinni í Cannes í ár. Eftir að það leið yfir hana í allt of þröngum gömlum kjól frá Prada í byrjun vikunnar átti hún athygli allra í glæsilegu pilsi og skyrtu frá Dior á rauða dreglinum. Mikil vinna var lögð í dressið frá Dior og tók vinnan sinn tíma eins og franska tískuhúsið hefur greint frá.
Tölurnar á bak við fötin segja sína sögu en það tók 450 klukkutíma að vinna kjólinn. Það tók 150 tíma að vinna skyrtuna en 200 tíma að vinna dökkbláa pilsið en í það fóru 50 metrar af tjulli.
Listrænn stjórnandi Dior, Maria Grazia Chiuri, hannaði skyrtuna og pilsið sérstaklega fyrir Fanning. Fötin minna á gömlu Hollywood sem passar sérstaklega vel við á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Hatturinn toppar allt og setur punktinn yfir-ið.