Fá aðgang að vaxandi markaði

Fiskeldismenn voru með kynningu á íslensku fiskeldi fyrir tollamálaráðherra Kína …
Fiskeldismenn voru með kynningu á íslensku fiskeldi fyrir tollamálaráðherra Kína og sendinefndina. Kínverjarnir voru afar áhugasamir.

„Það hef­ur mikla þýðingu fyr­ir okk­ur að fá aðgang að mest vax­andi markaði fyr­ir lax í heim­in­um,“ seg­ir Sig­urður Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri hjá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish á Vest­fjörðum, um opn­un Kína­markaðar fyr­ir ís­lensk­ar eldisaf­urðir.

Guðlaug­ur Þór Þórðar­son ut­an­rík­is­ráðherra og Ni Yu­efeng, tolla­málaráðherra Kína, und­ir­rituðu í gær þrjár nýj­ar bók­an­ir við fríversl­un­ar­samn­ing land­anna. Þær eru um viður­kenn­ingu á heil­brigðis­stöðlum fyr­ir fisk­eldisaf­urðir, fiski­mjöl og lýsi og ull og gær­ur. Verður fríversl­un­ar­samn­ing­ur­inn sem gerður var fyr­ir fimm árum því virk­ur fyr­ir þess­ar afurðir.

Veit­ir sam­keppn­is­for­skot

„Þetta er gríðarlega stór markaður sem fer stækk­andi og býður upp á mikla mögu­leika. Það hef­ur verið al­gert for­gangs­mál hjá mér að klára þetta. Nú er búið að ryðja síðustu hindr­un­un­um úr vegi,“ seg­ir Guðlaug­ur Þór í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: