Síðasta útskriftarathöfn Margrétar Friðriksdóttur sem skólameistara MK var haldin í Digraneskirkju í gær. Þar brautskráðust alls 218 nemar úr skólanum.
Það voru 61 stúdentar og 47 iðnnemar. Þá voru sjö ferðamálafræðinemar, 35 leiðsögumenn, 24 matsveinar, 42 úr meistaraskóla matvælagreina og tveir af starfsbraut.
Varaforseti bæjarstjórnar, Pétur Hrafn Sigurðsson, afhenti útskriftarnemum viðurkenningar úr Viðurkenningarsjóði MK sem stofnaður var af bæjarstjórn Kópavogs árið 1993. Margrét Friðriksdóttir er forseti bæjarstjórnar frá 2014. Þrír nemar hlutu viðurkenningu að þessu sinni: nýstúdentar Ester Hulda Ólafsdóttir og Karen Birta Kjartansdóttir og nýsveinn Sandra Sif Eiðsdóttir.
Rótarýklúbbur Kópavogs veitti nýstúdent Ester Huldu Ólafsdóttur verðlaun fyrir góðan árangur í raungreinum og Rótarýklúbburinn Borgir í Kópavogi veitti nýsveini í framreiðslu Söndru Sif Eiðsdóttur verðlaun fyrir góðan námsárangur í iðnnámi.
Karen Birta Kjartansdóttir hlaut styrk úr Ingólfssjóði fyrir góðan námsárangur og störf að mannúðarmálum. Sjóður sá var stofnaður af fyrrverandi nemendum skólans til minningar um Ingólf A. Þorkelsson skólameistara.