Sóttu um fiskeldisleyfi samhliða áliti atvinnuveganefndar

Áformað er að efla fiskeldið.
Áformað er að efla fiskeldið. mbl.is/Helgi Bjarnason

Morg­un­blaðið hef­ur und­ir hönd­um gögn sem sýna að fyr­ir­tækið Arctic Sea Farm lagði fram þrjár um­sókn­ir nær sam­hliða því að at­vinnu­vega­nefnd skilaði áliti vegna breyt­inga á lög­um um fisk­eldi.

Álitið er dag­sett 17. maí og birt 20. maí. Til sam­an­b­urðar lagði Arctic Sea Farm fram eina um­sókn 16. maí og tvær aðrar 20. maí.

Fram kem­ur í áliti nefnd­ar­inn­ar að við mat á um­sókn­um verði horft til þess hversu langt þær séu komn­ar í ferl­inu fyr­ir gildis­töku lag­anna.

Mág­ur Gunn­ars Atla Gunn­ars­son­ar, aðstoðar­manns Kristjáns Þórs Júlí­us­son­ar sjáv­ar­út­vegs­ráðherra, er stjórn­andi hjá Arctic Sea Farm. Lilja Raf­ney Magnús­dótt­ir, formaður at­vinnu­vega­nefnd­ar, seg­ir að næstu daga verði unnið að því að skýra hvaða um­sókn­ir telj­ist vera gild­ar.

Tengsl­in tal­in óheppi­leg

Rætt var við Óðin Sigþórs­son, sem sat í starfs­hópi sjáv­ar­út­vegs­ráðherra um stefnu­mörk­un í fisk­eldi, í Morg­un­blaðinu í gær. Hann taldi óheppi­legt að Gunn­ar Atli Gunn­ars­son, aðstoðarmaður Kristjáns Þórs Júlí­us­son­ar, sjáv­ar­út­vegs­ráðherra, sem hafi sterk fjöl­skyldu­tengsl inn í fisk­eld­is­fyr­ir­tæki, skuli hafa jafn mikla aðkomu að mál­inu og raun ber vitni. Ekki náðist í Kristján Þór í gær.

Skýra þurfi ákvæði um um­sókn­irn­ar

Re­bekka Hilm­ars­dótt­ir, bæj­ar­stjóri Vest­ur­byggðar, seg­ir bæj­ar­fé­lagið ekki gera mikl­ar at­huga­semd­ir við fisk­eld­is­frum­varpið eins og það ligg­ur nú fyr­ir. Meðal breyt­inga­til­lagna er að ný máls­grein komi inn í lög­in varðandi áhættumat erfðablönd­un­ar. Tekið skuli til­lit til mót­vægisaðgerða sem dragi úr mögu­legri erfðablönd­un. Hafró skuli leita eft­ir til­lög­um eld­is­fyr­ir­tækja að slík­um mót­vægisaðgerðum.

Re­bekka seg­ir full­trúa Vest­ur­byggðar ekki hafa sterk­ar skoðanir á þessu atriði. „Við höf­um verið hugsi yfir því, og höf­um minnst á það líka við at­vinnu­vega­nefnd, að við erum nú þegar kom­in með 10 þús. tonna eldi í gang hér á sunn­an­verðum Vest­fjörðum og erum ekki með einn eft­ir­lits­mann á svæðinu.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: