Hver er formúlan, hvað er trikkið?

Margir vilja vita hvað leyndarmálið sé á bak við velgengni …
Margir vilja vita hvað leyndarmálið sé á bak við velgengni Íslendinga á tónlistarsviðinu. Eggert Jóhannesson

„Hvað er trikkið, hvernig farið þið að þessu? Hvernig farið þið að því að flytja út svona mikið af músík frá svona litlum stað?“ Spurningar í þessum dúr dynja ósjaldan á Sigtryggi Baldurssyni, framkvæmdastjóra Útón - Útflutningsmiðstöðvar íslenskrar tónlistar. Víða er verið að huga að því að styðja tónlistarmenn til sóknar á stærri markaði og þar líta ófáir til Íslands. Sigtryggur nefnir Eistland, Lúxemborg og Hong Kong í því samhengi og þar vill fólk vita hver galdurinn sé. „Þetta eru staðir sem telja sig geta speglað sig við Ísland á einhvern hátt og því líta þeir til okkar,“ segir Sigtryggur sem er einmitt á leið til Hong Kong þangað sem honum var boðið til að miðla reynslu Íslendinga í tónlistarútflutningi.

Því miður, fyrir þjóðir í þessum sporum, er þó erfitt að setja fingurinn á hvað það er sem virkar í þessum efnum. Tónlist er flókið fyrirbrigði þar sem fólk bæði speglar sjálfsmynd sína, hlustar, upplifir og bara fílar sig. Vonandi verður aldrei hægt að setja fingurinn á einhverja töfraformúlu í þessum efnum.

Það er þó ýmislegt sem vinnur með íslensku tónlistarfólki og Sigtryggur bendir fyrst af öllu á hefðina. „Okkar stærstu „ambassadorar“ úti í heimi er tónlistarfólk sem er að gera tónlist á eigin forsendum. Björk, Sigur Rós og mögulega Sykurmolarnir þar á undan.“ Sigtryggur segir hefð hafa skapast fyrir óvenjulegri tónlist frá Íslandi og það brautryðjendastarf sé ómetanlegt. Nú sé eitt stærsta einkennið á tónlistarútflutningi Íslendinga hversu breið flóran sé. Hann bendir á samtímatónskáld á borð við Önnu Þorvaldsdóttur og Daníel Bjarnason en önnur dæmi væru t.d. Hatari, Kælan mikla og íslenska metal-senan sem sé sterk alþjóðlega. „Það er svo skemmtilegt að það er tónlistarfólk í mörgum ólíkum geirum sem er að ganga vel.“

Kælan mikla hefur vakið mikla athygli að undanförnu.
Kælan mikla hefur vakið mikla athygli að undanförnu. Styrmir Kári

Viðskiptaþróunin þarf að vera hér

Nýlegri dæmi um velgengni á mjög stórum skala eru Of Monsters and Men og Kaleo. Tónlistaratriði sem erfitt væri að setja í sama flokk og Sigur Rós eða Björk. Þar bendir Sigtryggur á að rétt umboðsfólk hafi komið auga á hljómsveitirnar sem hafi vitað hvaða leiðir hafi verið hægt að fara með þær inn á Bandaríkjamarkað í gegnum alþjóðlega útgáfurisa. Kostnaður við slík verkefni getur auðveldlega hlaupið á hundruðum milljóna áður en nokkuð að ráði fari að skila sér í kassann. „Þetta er bara fjárfesting, þetta eru allt sprotaverkefni sem þurfa fjárfestingu en ekki síður viðskiptastjórnun,“ segir Sigtryggur.

En það þurfa ekki allir að fara sömu leiðirnar og rétta fólkið þarf að finna réttu leiðirnar og hann bendir aftur á Kæluna miklu. Sveitin sé að vinna með kanadískum umboðsmanni og þeim hafi tekist að ná eftirtektarverðum árangri, t.a.m. koma þær fram á hátíð sem Robert Smith úr The Cure sér um að velja listamennina á síðar í sumar í Los Angeles. „Hann veit hvað á að gera við þetta, hvar markhópurinn er og hvernig á að ná til hans.“

Tónlistarnotkun í sjónvarpi og kvikmyndum fer vaxandi

Sköpunin hefur verið aðall íslensks tónlistarlífs síðustu þrjá áratugi á meðan viðskiptahlið þeirra fjölmörgu tónlistaratriða sem hafa náð langt hefur að mestu verið í höndum útlendinga. Á því sviði þurfum við að skapa okkur hefð. Fyrirtæki á borð við Öldu (útgáfa), Klapp (umboðsfyrirtæki) og Bedroom Community (útgáfa) eru dæmi um fyrirtæki sem eru að vinna í því.

„Við erum búin að vera að gera mikið af því sem er kallað að „flytja út fiskinn óunninn“ í fiskiðnaðinum. Við erum búin að flytja út tónlistarfólk til ábata fyrir erlend fyrirtæki,“ segir Sigtryggur. Sá geiri tónlistariðnaðarins sem hefur vaxið hvað hraðast á undanförnum fimm árum er tónlistarnotkun í sjónvarpi og kvikmyndum. Þarna eru mikil tækifæri en að sama skapi hafa Íslendingar náð að skapa sér óvenjusterka hefð á sviðinu. Verkefnið er að fá fólk með viðskiptavit í tónlistargeirann og fjárfesta til að styðja við það.

Upptökur á tónlist fyir tvö stór kvikmyndaverkefni munu fara fram …
Upptökur á tónlist fyir tvö stór kvikmyndaverkefni munu fara fram í Hofi á Akureyri. mbl.is/Hjálmar

Einstakur áfangastaður

Eitt af verkefnum Útón þessa dagana er að laða fólk til Íslands í upptökur. Verkefnið, sem ber heitið Record in Iceland, er samstarf ÚTÓN, Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur og utanríkisþjónustunnar og er kostað af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu til tveggja ára. Fjölmörg hljóðver eru starfandi hérlendis og nú er þeim sem hingað koma í upptökur boðið upp á 25% endurgreiðslu á upptökukostnaði. Vefurinn recordiniceland.is var settur í loftið og fólk frá erlendum fagtímaritum er á leið til landsins meðal annars í tengslum við tónlistarviðburði á borð við Iceland Airwaves til að fjalla um möguleika í upptökum hérlendis. „Það eru þegar komin tvö stór kvikmyndatónlistarverkefni sem eru á leiðinni norður í stúdíóið í Hofi,“ segir Sigtryggur.

Til að byrja með eru sex hljóðver auglýst sem hafa öll reynslu af því að taka við erlendum verkefnum en með tímanum er markmiðið að öll íslensk hljóðver sem hafa til þess burði, vefsíðu á ensku og utanumhald sem geti séð um erlendar bókanir, geti tekið þátt í verkefninu. Þar er líka hægt að nýta alla þá ímyndarvinnu sem hefur unnist á síðustu árum um Ísland sem einstakan áfangastað og tónlistarfólki er seld sú hugmynd að taka upp í þessu umhverfi.

Flugviskubit þjáir íslenskt tónlistarfólk og ekki síður Sigtrygg sem flýgur til Hong Kong á þriðjudag. „Ég trúi því staðfastlega að loftslagsmálin séu stærsta úrlausnarefni samtímans og mín tilfinning er að við sem samfélag séum ekki að gera nóg til að takast á við þau.“ Útón stefnir því að gróðursetningu á 20.000 trjám í Hekluskóga og verður hópferð í rútu frá Guðmundi Tyrfingssyni í dag þar sem tónlistarfólk getur kolefnisjafnað ferðalög sín.

Þetta er þó óvenjulegt verkefni hjá Útón, eitt helsta hlutverk skrifstofunnar er að miðla upplýsingum til tónlistarfólks og hjálpa því að fóta sig í tónlistargeiranum sem getur verið hálfgert völundarhús þar sem oft þarf að finna nýjar slóðir sem henta hverjum og einum. Dæmi um þetta eru fræðslukvöld með hljómsveitunum sem komast í úrslit Músíktilrauna og Umbakaffið en þar mæta umboðsmenn og aðrir í bransanum til að bera saman bækur sínar. „Þetta byrjar allt á samtalinu,“ segir Sigtryggur.

Góð mæting var í fyrstu gróðursetningarferð Útón við Heklurætur.
Góð mæting var í fyrstu gróðursetningarferð Útón við Heklurætur. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is