Frumvarpi um fiskeldi verði frestað

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi vilja að mikilvægir efnisþættir í frumvarpinu …
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi vilja að mikilvægir efnisþættir í frumvarpinu verði endurskoðaðir. mbl.is/Helgi Bjarnason

Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi óska þess að af­greiðslu laga­frum­varps um starfs­um­hverfi fisk­eld­is sem nú er til annarr­ar umræðu á Alþingi verði frestað.

Þannig gef­ist færi til að end­ur­skoða mik­il­væga efn­isþætti frum­varps­ins og færa til betri veg­ar. Sú vinna gæti orðið til þess að skapa meiri sátt um fisk­eldi, að því er seg­ir í til­kynn­ingu.

„Fram kom í ræðu fram­sögu­manns at­vinnu­vega­nefnd­ar á Alþingi að mik­il eind­rægni hefði verið í nefnd­inni um málið og tek­ist hefði að sætta þar ýmis sjón­ar­mið. Þótt sögð hafi verið samstaða í nefnd­inni, eru það þó fyr­ir­tæk­in í land­inu sem þurfa að fylgja ákvæðum nýrra laga, þar er veru­leik­inn fyr­ir utan veggi Alþing­is,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Fram kem­ur að fisk­eldi sé að verða veiga­mik­il stoð í ís­lensku efna­hags­lífi og því mik­il­vægt að upp­bygg­ing þess verði í sátt við sam­fé­lag og um­hverfi.

„Fyr­ir­liggj­andi frum­varp þreng­ir hins veg­ar mjög að rekstr­ar­skil­yrðum fisk­eld­is­fyr­ir­tækja og haml­ar veru­lega þeirri upp­bygg­ingu sem nauðsyn­leg er í at­vinnu­grein­inni svo hún geti til framtíðar skapað góð störf og skilað tekj­um til sam­fé­lags­ins. Marg­ir þýðing­ar­mikl­ir agn­ú­ar eru á frum­varp­inu og um áhrif þeirra fást eng­in svör, hvorki frá ráðherra né þing­mönn­um.“

mbl.is