Breytingar á fiskeldislögum ósanngjarnar

Ný fiskeldislög virðast fara frekar illa í flest fyrirtæki í …
Ný fiskeldislög virðast fara frekar illa í flest fyrirtæki í fiskeldi.

„Hann var hár fyrsti vinn­ing­ur­inn í fisk­eld­islottó­inu og það sting­ur í augu að þetta fyr­ir­tæki skuli eitt standa uppi með all­ar töl­ur sín­ar rétt­ar en verðmæti þess­ara leyfa á upp­boðsmarkaði í Nor­egi gæti numið rúm­lega 30 millj­örðum.“

Þetta seg­ir Óðinn Sigþórs­son, sem sat í starfs­hópi sjáv­ar­út­vegs­ráðherra um stefnu­mörk­un í fisk­eldi, í Morg­un­blaðinu í dag. Óðinn vís­ar í um­mæl­um sín­um til þess að með breyt­ing­um á fisk­eld­is­lög­um sem samþykkt voru á þriðju­dag­inn hafi Arctic Fish fengið að halda í gildi um­sókn um hátt í 20.000 tonn á meðan sum fyr­ir­tæki tapi öll­um um­sókn­um sín­um og önn­ur fyr­ir­tæki haldi lægri um­sókn­um í gildi.

Í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag seg­ir Óðinn þetta á skjön við niður­stöðu starfs­hóps ráðherra um stefnu­mörk­un í fisk­eldi sem vildi að annaðhvort yrðu all­ar um­sókn­ir að telj­ast gild­ar eða all­ar að falla niður.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: