Karlmaður hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir gróf kynferðisbrot gegn syni sínum, sem áttu sér stað á heimilum ákærða á árunum 1996-2003, er sonur hans var 4-11 ára gamall.
Maðurinn er í ákæru sagður hafa beitt son sinn ofbeldi og ólöglegri nauðung, þar sem hann nýtti sér yfirburði sína gagnvart drengnum og traust hans og trúnað til hans sem föður.
Honum er gefið að sök að hafa í fjölda skipta haft endaþarmsmök við drenginn, auk þess að hafa oftsinnis káfað á kynfærum drengsins og látið drenginn káfa á sér.
Þá er hann einnig ákærður fyrir að hafa ítrekað sýnt drengnum klámefni, sem ýmist sýndi fullorðna einstaklinga eða börn sem voru beitt kynferðislegu ofbeldi af hálfu fullorðinna karlmanna.
Mál mannsins var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.