„Umræðan verið nokkuð harkaleg“

Kristján Þór segist hafa viljað kalla fulltrúa aðilanna saman til …
Kristján Þór segist hafa viljað kalla fulltrúa aðilanna saman til að fara yfir næstu skref. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, átti í dag fund með helstu hags­munaaðilum í upp­bygg­ingu fisk­eld­is. Til­efni fund­ar­ins var samþykkt Alþing­is í síðustu viku á tveim­ur frum­vörp­um um fisk­eldi, ann­ars veg­ar um gjald­töku og hins veg­ar um breyt­ing­ar á ýms­um lög­um um fisk­eldi.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráðinu. Seg­ir í henni að á fund­in­um hafi Kristján Þór farið yfir næstu skref í þeim verk­efn­um sem samþykkt frum­varp­anna leiði af sér og jafn­framt kallað eft­ir sjón­ar­miðum fund­ar­gesta.

Aðilar skipt sér í fylk­ing­ar

„Und­an­farna mánuði og miss­eri hef­ur umræðan um upp­bygg­ingu fisk­eld­is verið nokkuð harka­leg og þar hafa þess­ir helstu aðilar skipt sér í fylk­ing­ar,“ er haft eft­ir ráðherr­an­um í til­kynn­ing­unni.

„Ég vildi með þess­um fundi kalla full­trúa þess­ara aðila sam­an og fara yfir næstu skref. Jafn­framt hvetja þá til að leita leiða til að leggja sín lóð á vog­ar­skál­arn­ar þannig að meiri sátt geti skap­ast um upp­bygg­ingu at­vinnu­grein­ar­inn­ar. Ég er sann­færður um að samþykkt Alþing­is á þess­um tveim­ur frum­vörp­um geti orðið góður grunn­ur í því verk­efni.“

Fund­inn sátu full­trú­ar frá Icelandic Wild­li­fe Fund, Lands­sam­bandi veiðifé­laga, Sam­tök­um fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, Sam­bandi ís­lenskra sveit­ar­fé­laga auk full­trúa frá sveit­ar­fé­lög­um á Vest­fjörðum og Aust­ur­landi.

mbl.is