Ljósmyndarinn Saga Sigurðardóttir og tónlistarmaðurinn Vilhelm Anton Jónsson eru nýjasta parið í bænum.
Saga og Vilhelm hafa verið að hittast undanfarnar vikur en hann mætti á málverkasýningu Sögu á Hverfisgötu um helgina.
Saga hefur getið sér gott orð síðustu ár sem einn af færustu ljósmyndurum landsins en hún sýndi í fyrsta skipti málverk sín á Bismút um helgina. Villi er oft kenndur við hljómsveit sína 200.000 naglbítar en hann hefur einnig gefið út vísindabækur fyrir börn og komið að sjónvarpsþátta- og kvikmyndagerð.