Matvælastofnun hefur auglýst eftir athugasemdum við tillögum að rekstrarleyfum fyrir fiskeldisfyrirtækin Arctic Sea Farm og Fjarðalax.
Rekstrarleyfi fyrirtækjanna voru gefin út í desember 2017 en felld úr gildi af úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála í september þar sem talinn var skortur á umræðu um valkosti í umhverfismati. Fyrirtækin, sem reka fiskeldi í Patreks- og Tálknafirði, starfa samkvæmt bráðabirgðarekstrarleyfi sem umhverfis- og auðlindaráðherra veitti fyrirtækjunum í nóvember.
Matvælastofnun vinnur með eldri umsókn og ný gögn sem rekstaraðili hefur lagt fram vegna eldisins. Hægt er að skila inn athugasemdum við tillöguna til 2. ágúst.