Hitametin falla víða

Hitamet hafa verið slegin í Frakklandi, Belgíu, Þýskalandi og Bretlandi …
Hitamet hafa verið slegin í Frakklandi, Belgíu, Þýskalandi og Bretlandi undanfarna daga. AFP

Hita­met var slegið í Belg­íu í gær þegar met­in féllu víða í óvenju­mikl­um hita í vest­ur­hluta Evr­ópu. Met féllu í borg­um í Hollandi, Þýskalandi, Bretlandi og Frakklandi.

AFP hef­ur eft­ir Dav­id Dehenauw hjá belg­ísku veður­stof­unni að hit­inn hafi náð 41,8°C í bæn­um Begijn­endijk sem er norðaust­an við Brus­sel.

Það er hæsti hiti sem mælst hef­ur í Belg­íu frá því mæl­ing­ar hóf­ust árið 1833.

Í gær var greint frá því að hit­inn í Belg­íu hefði farið upp í 40,6°C í Kleine Brog­el og að það væri met. 

42°C í París í gær.
42°C í Par­ís í gær. AFP

Vís­inda­menn segja lofts­lags­vána valda því að lík­ur á hita­bylgj­um á borð við þessa séu nú fimm sinn­um meiri, sem og að þær verði mun svæsn­ari.

mbl.is