Lögreglan í Hong Kong beitti táragasi á mótmælendur í Yuen Long hverfinu í dag þar sem óleyfileg mótmæli fóru fram. Talið er að mörg þúsund hafi komið þar saman til mótmæla.
Mótmælendur fordæma árásir grímuklæddra manna gegn mótmælendum fyrir nokkrum dögum sem og afskiptaleysi lögreglu.
45 særðust þegar hópur manna vopnaður bareflum réðst á mótmælendur í lestarstöð í byrjun vikunnar. Atvikið vakti mikla athygli og reiði, ekki síst þar sem lögregla þótti afar lengi að koma sér á staðinn.
Lögregla bannaði fjöldafund mótmælenda í kjölfar árásarinnar á lestarstöðinni. Afar sjaldgæft er að ekki sé veitt leyfi fyrir mótmælum en lögregla sagðist óttast ofbeldi.
Mótmælendur komu því saman í óleyfi og kölluðu slagorð gegn lögreglu, sem beitti táragasi á mótmælendur.
Mótmælt hefur verið í Hong Kong frá því um miðjan júní þegar stjórnvöld kynntu áætlun sína að leggja fram framsalsfrumvarp sem margir innfæddir í Hong Kong töldu vera Trójuhest Kínverja til að fá aukin völd í sjálfstjórnarhéraðinu.
Ríkisstjóri Hong Kong, Carrie Lam, þykir alltof höll undir ásælni Kínverja um meiri yfirráð yfir sjálfstjórnarhéraðinu og er henni vantreyst mjög af íbúum Hong Kong.
Mótmælendur hafa lofað því að viðhalda þrýstingi á stjórnvöld í Hong Kong þangað til kröfum þeirra verður mætt en þær eru meðal annars að Carrie Lam segi af sér og að lofað verði að framsalsfrumvarpið verði aldrei lagt fyrir í framtíðinni.