„Þetta gengur nokkuð vel. Við erum að leggja lokahönd á að undirbúa þann hluta skólans sem verður nýttur undir skólastarfið,“ segir Aðalbjörg Ingadóttir, skólastjóri Fossvogsskóla, um skólastarfið sem hefst formlega í næstu viku.
Talsverðar framkvæmdir hafa staðið yfir og standa enn á húsnæði skólans. Með góðu skipulagi og útsjónarsemi er hægt að koma öllum nemendum skólans fyrir í húsnæðinu á meðan viðgerðir standa yfir, að sögn Aðalbjargar. Breytingar á skólsafninu gera það að verkum að við getum meðal annars nýtt það betur undir kennslu en áður.
Einni álmu skólans, vestanmegin sem nefnist Vesturland verður lokað. Þar reyndist ástand þaksins verra en áður var talið og áætluð verklok þar verða í nóvember.
Í mars á síðasta skólaári var greint frá mygluskemmdum á skólahúsnæðinu og þurfti að fara í víðtækar lagfæringar á öllum þremur álmum skólans; Vesturlandi, Austurlandi og Meginlandi. Vegna þeirrar vinnu var á fjórða hundrað nemendum skólans fundin aðstaða í höfuðstöðvum KSÍ og í Þróttaraheimilinu í Laugardal. Voru rútuferðir frá Fossvogi yfir í Laugardalinn.
„Auðvitað þrengir að skólastarfinu á meðan á þessu stendur en við erum sátt að hafa lent því þannig að við erum öll undir sama þaki. Þetta auðveldar alla samvinnu og einfaldar hlutina mikið,“ segir Aðalbjörg.
Auk framkvæmdanna innanhúss er einnig unnið á lóð skólans austanmegin við hann. Þá er unnið að því að bæta aðstöðu sunnan megin í skólahúsnæðinu þar sem frístundastarf skólans fer fram. Aðalbjörg bendir á að þrátt fyrir að framkvæmdir standi yfir á skólanum mun það ekki hafa teljandi áhrif á skólastarfið.