Gat kom á kví með 179 þúsund löxum

Frá starfsemi Arnarlax í Tálknafirði.
Frá starfsemi Arnarlax í Tálknafirði. mbl.is/Guðlaugur Albertsson

Gat kom á nótar­poka einn­ar sjókví­ar Arn­ar­lax við Laug­ar­dal í Tálknafirði fyrr í mánuðinum og barst Mat­væla­stofn­un til­kynn­ing um þetta á föstu­dag.

Upp­götvaðist gatið við þrif og er viðgerð lokið, að því er seg­ir á vef stofn­un­ar­inn­ar. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins hafi gatið verið um 7 senti­metr­ar að hæð og 12 senti­metr­ar að breidd, en 179 þúsund lax­ar voru í kvínni og var meðalþyngd þeirra 280 grömm.

„Við köf­un­ar­eft­ir­lit sem átti sér stað fyrr í þess­um mánuði, eða 6. ág­úst sl., var nótar­poki heill,“ seg­ir á vef stofn­un­ar­inn­ar.

At­vikið sé þar til meðferðar og muni eft­ir­lits­menn skoða aðstæður hjá fyr­ir­tæk­inu og fara yfir viðbrögð þess.

Bent er á að Arn­ar­lax hafi lagt út net í sam­ráði við Fiski­stofu til að kanna hvort slysaslepp­ing hefði átt sér stað. Net­anna hafi verið vitjað bæði á laug­ar­dag og sunnu­dag og eng­inn lax veiðst. Því hafi síðan verið hætt. 

mbl.is