Heimildarmaður segir Liam kominn með nóg. Nú sé ekki hægt að snúa aftur og hann veit að hann vill halda áfram með líf sitt. „Þau hafa ekki átt í miklum samskiptum. Það er ekkert sem þarf að tala um,“ sagði heimildarmaðurinn.
Margir héldu að hjónin Liam Hemsworth og Miley Cyrus biðu með að skilja formlega þegar þau tilkynntu fyrr í ágúst að þau væru hætt saman. Svo virðist þó sem slepptu mér/haltu mér-samband þeirra sé búið og hefur Hemsworth sótt formlega um skilnað frá söngkonunni.
Á vef The Blast kemur fram að ástralski leikarinn hafi sótt formlega um skilnað frá söngkonunni í Los Angeles á miðvikudaginn. Í skjölunum kemur fram að ástæða skilnaðarins sé ósættanlegur ágreiningur. Hemsworth biður ekki um peninga frá Cyrus enda skrifuðu þau undir kaupmála áður en þau giftu sig 23. desember í fyrra.
Heimildarmaður E! segir að skilnaðurinn ætti að vera einfaldur vegna kaupmálans. Hjónin voru með aðskilinn fjárhag meðan á hjónabandinu stóð auk þess sem þau áttu fasteignir sem þau keyptu áður en þau gengu í hjónaband. Það eina sem þarf að skipta upp á milli þeirra eru dýrin þeirra.