Ein fallegasta gata Parísarborgar?

Á Plaza Athénée er hægt að eiga ljúfar stundir eftir …
Á Plaza Athénée er hægt að eiga ljúfar stundir eftir verslunarleiðangur um Avenue Montaigne.

Það eru fjölmargir áhugaverðir staðir að heimsækja í París en ef þú elskar tískuna og vilt vera nálægt fólkinu sem elskar tískuna líka þá er Avenue Montaigne gatan sem þú ættir að heimsækja í borginni. 

Leikkonan fræga Marlene Dietrich átti íbúð í húsi númer 12 á Avenue Montaigne sem hún bjó og lifði í allt þar til hún dó árið 1992. 

Gatan er í áttunda hverfi Parísar borgar og hýsir tískuverslanir á borð við Louis Vuitton, Dior, Chanel, Fendi, Valentino og Céline svo eitthvað sé nefnt. 

Þeir sem hafa mikinn áhuga á tísku ættu að gefa sér heilan dag við þessa sögufrægu götu. Mælt er með því að prófa matinn á veitingahúsinu fræga L´Avenue sem stendur á miðri götunni. Gestir og gangandi mega eiga von á að rekast á þekkta tískuhönnuði, leikara og viðskiptafólk á þessum slóðum. Þar kemur fólk alls staðar að úr heiminum til að gera viðskiptasamninga. 

Í götunni finna bílaáhugamenn vanalega eitthvað virkilega áhugavert að horfa á. Nýjustu og fallegustu bílunum er vanalega lagt við þessa götu. 911 Porche bílum er sem dæmi lagt við þessa götu tíðum.

Það er enginn maður með mönnum nema að hafa stigið inn á hið sögufræga Plaza Athénée þar sem ævintýrin gerast á hverjum klukkutíma sólahringsins. Það ættu allir að finna sér eitthvað áhugavert að gera í þessari dásamlegu götu sem hentar jafnvel þeim sem ætla að kaupa sér lúxusvörur og þeim sem langar að fylgjast með því nýjasta sem er í gangi hverju sinni. 

mbl.is