Donald Trump Bandaríkjaforseti segist vera reiðubúinn að hitta Hassan Rouhani, forseta Írans, á næstu vikum til að ræða samskipti ríkjanna með hliðsjón af kjarnorkuáætlun Írans.
Málefni Írans voru á meðal fundarefna G7-ríkjanna sem funduðu stíft í Biarritz í Frakklandi um helgina. Javad Zarif , utanríkisráðherra Írans, kom óvænt til Biarritz í gær. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, átti milligöngu um komu ráðherrans en Macron hefur beitt sér fyrir því að draga úr vaxandi spennu milli Írans og Bandaríkjanna.
Macron segir að með fundahöldunum um helgina hafi skapast vettvangur fyrir fund forsetanna. Trump játt því og tók undir orð Macron um að forsetarnir gætu hugsanlega rætt saman á næstu vikum.
„Ég held að hann vilji hitta mig. Ég held að Íran vilji greiða úr málunum,“ sagði Trump á blaðamannafundi við fundarlok G7-ríkjanna í Biarritz í dag.
Rouhani greindi frá því fyrr í dag að hann hyggst ekki hika við að hefja viðræður sem gætu leitt til hagsældar fyrir land og þjóð.
Samskipti Bandaríkjanna og Íran hafa verið eldfim frá því að Bandaríkjastjórn dró ríkið úr samningi um kjarnorkuáætlun Írans sem undirritaður var 2015. Trump hefur innleitt nýjar refsiaðgerðir gegn Íran sem Macron hefur eindregið hvatt til að dregið verði úr.
Næsti formlegi fundur leiðtoga G7-ríkjanna fer fram í Bandaríkjunum á næsta ári. Hópurinn var áður þekktur undir nafninu G8, en Rússum var vísað úr hópnum árið 2014 vegna afskipta af deilum innan Úkraínu og innlimun Krímskaga.
Trump fullyrti hins vegar í dag að hann myndi „svo sannarlega“ bjóða Vladimír Pútín Rússlandsforseta að sækja fund leiðtoganna í Bandaríkjunum en hann var ekki tilbúin að fullyrða hvort Pútín myndi þekkjast boðið. „Hann er stoltur maður,“ sagði Trump um Pútín.