Alþingi samþykki ákvæði um auðlindir

Katrín Jakobsdóttir á Alþingi.
Katrín Jakobsdóttir á Alþingi. mbl.is/​Hari

Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra seg­ir ekk­ert nýtt hafa komið fram í máli and­stæðinga inn­leiðing­ar þriðja orkupakk­ans á Alþingi í dag.

Hún seg­ist hafa orðið undr­andi þegar hún heyrði Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son, formann Miðflokks­ins, spyrja ut­an­rík­is­ráðherra að því í morg­un hvernig stæði á því að hann væri ekki kom­inn með ný gögn og nýj­ar upp­lýs­ing­ar.

„Ég taldi al­veg full­ljóst að það hefði legið fyr­ir hér frá upp­hafi að við teld­um málið full­rætt og full­reifað en hins veg­ar vild­um við gefa and­stæðing­um máls­ins færi á að koma fram með ný gögn,” sagði Katrín á Alþingi.

Hún nefndi að hvorki í meðför­um ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar né í umræðunni á Alþingi í dag hafi verið sýnt fram á nein ný gögn eða nýj­ar upp­lýs­ing­ar komið fram. Bætti hún við að fræðimenn hafi verið sam­mála sjálf­um sér frá því í vor.

Ljúki af­geiðslu ákvæðis um auðlind­ir 

Katrín sagði sitt mat vera það að inn­tak þriðja orkupakk­ans gefi ekk­ert til­efni til þess að hafa nein­ar áhyggj­ur. Hún spurði sig því hvað valdi þeim áhyggj­um sem hún og fólkið í kring­um hana skynj­ar. Sagði hún fólk vera ósátt við að ekk­ert ákvæði sé í stjórn­ar­skránni um sam­eign þjóðar­inn­ar á auðlind­um en yfir 80% þjóðar­inn­ar vildu í þjóðar­at­kvæðagreiðslu fá slíkt ákvæði.

„Geta hátt­virt­ir þing­menn kannski tekið sig sam­an um að þetta þing ljúki af­greiðslu slíks ákvæðis?” spurði hún vonaði að þar með gætu þing­menn sam­mælst um að koma til móts við þær áhyggj­ur sem eru að heyr­ast. „Þetta skipt­ir máli í því sam­hengi sem við erum að ræða hér.” Einnig kvaðst hún von­ast til að þing­menn muni sam­mæl­ast um að setja skýr­ari ramma um landa­kaup á Íslandi. Meðal ann­ars mætti ræða hvort það sé eðli­legt að vatns­rétt­indi eigi að fylgja landrétt­ind­um. 

„Ég heyrði ekki and­stæðinga þriðja orkupakk­ans hafa mikl­ar áhyggj­ur af því að hér eru er­lend­ir fjár­fest­ar að fjár­festa fyr­ir á fimmta millj­arð í vatns­verk­smiðjum. En í hverju eru þess­ir fjár­fest­ar að fjár­festa? Þeir eru að fjár­festa í vatns­rétt­ind­um og vatns­auðlind­inni,” sagði hún.

mbl.is