Lögreglan í Hong Kong hefur beitt táragasi, gúmmíkúlum og stærðarinnar vatnsbyssum til að tvístra mótmælendum sem safnast hafa saman í borginni, þrátt fyrir að fyrirhuguðum mótmælum um helgina hafi verið aflýst eftir að lögregla bannaði mótmælin af öryggisástæðum.
Mótmælt hefur verið í borginni síðustu tólf helgar og áttu mótmælin um helgina að marka það að fimm ár eru liðin frá því að íbúar mótmæltu afskiptum kínverskra yfirvalda af kosningum í sjálfsstjórnarhéraðinu.
Kveikjan að mótmælunum var lagafrumvarp sem heimila átti framsal brotamanna til meginlands Kína. Mótmælin hafa síðan þróast upp í kröfu um aukið lýðræði.
Íbúar í Hong Kong láta bannið ekki á sig fá og hafa gengið um götur borgarinnar í dag undir slagorðum líkt og „Standið með Hong Kong“ og „berjumst fyrir frelsi“.
Mótmælin í dag eru sögð skorta leiðtoga. Í gær voru þekktir aðgerðasinnar handteknir, Joshua Wong og Agnes Chow, og segja mannréttindahópar að þetta sé í samræmi við aðgerðir kínverskra stjórnvalda – að fjarlægja þá sem gætu reynst óþægur ljár í þúfu.