Stytta eldistíma í sjó

Unnið er að því að stytta eldistíma í sjó.
Unnið er að því að stytta eldistíma í sjó. Ljósmynd/Arctic Fish

Fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Arctic Fish á Vest­fjörðum er komið með leyfi til eld­is á 12 þúsund tonn­um af laxi á ári. Þegar er kyn­slóðaskipt eldi í þrem­ur fjörðum, Pat­reks­firði, Tálknafirði og Dýraf­irði. Stærðar­hag­kvæmni er aug­ljós í fisk­eldi og því er áfram unnið að um­sókn­um um aukn­ingu. Grunn­ur allr­ar starf­sem­inn­ar er ný og full­kom­in seiðastöð í botni Tálkna­fjarðar sem bygg­ist á vatns­end­ur­nýt­ing­ar­kerfi (RAS).

„Stærðar­hag­kvæmni er mik­il­væg í lax­eldi. Oft er rætt um að fram­leiðslan þurfi að vera að minnsta kosti 10 þúsund tonn. Þegar við stofnuðum fyr­ir­tækið á ár­inu 2011 var það gert með þeirri framtíðar­sýn að byggja upp fyr­ir­tæki í um­hverf­i­s­vænu og sjálf­bæru eldi og gera einnig út á upp­runa afurðanna á Íslandi og Vest­fjörðum. Við erum nú að ná að sjá þá framtíðar­sýn verða að veru­leika,“ seg­ir Sig­urður Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Arctic Fish og stofn­andi fyr­ir­tæk­is­ins. Hann seg­ir að grunn­ur­inn að þess­um ár­angri sé gott starfs­fólk, góð seiðaeld­is­stöð og góðar staðsetn­ing­ar í sjó til framtíðar­upp­bygg­ing­ar.

Ein­stæður ár­ang­ur í sum­ar

Sjór­inn við Vest­f­irði er kald­ur en lax­eldið hef­ur þrátt fyr­ir það gengið ótrú­lega vel. Sig­urður tek­ur sem dæmi að seiði hafi verið sett út í kví­ar í Pat­reks­firði um miðjan maí í vor. Tel­ur hann að seiði hafi aldrei verið sett út jafn snemma hér við land. Þetta hafi verið stór seiði, eða yfir 200 grömm að jafnaði. Þau hafa fimm­faldað þyngd sína á þrem­ur og hálf­um mánuði og er fisk­ur­inn nú um kíló að þyngd. Það tel­ur Sig­urður ein­stak­an ár­ang­ur hér á landi. Lax­in­um verður hægt að slátra næsta haust, eft­ir aðeins einn vet­ur í sjó.

„Eldið lag­ar sig að aðstæðum í hverju landi og á hverju svæði. Okk­ur lang­ar til að fara þá leið að fram­leiða stærri seiði, 200 til 400 gramma, og stytta eld­is­tím­ann í sjó. Við erum bún­ir að skapa okk­ur aðstæður til að gera það í seiðastöðinni í Norður-Botni,“ seg­ir Sig­urður.

Þessi grein birt­ist
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Þessi grein birt­ist
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: