Á þessu ári og einnig á því síðasta var farið í fjölmargar framkvæmdir vegna loftgæða og mygluvanda í leik- og grunnskólum, sem og á frístundaheimilum Reykjavíkurborgar. Nú standa yfir framkvæmdir vegna raka- og mygluvanda í fimm grunnskólum og einu frístundaheimili.
Þetta eru eingöngu verkefni vegna loftgæða í byggingunum. Í skólunum er fjöldi annarra viðhaldsverkefna á hverjum tíma sem ekki eru talin upp hér. Þar á meðal endurbygging á einu húsi í Seljaskóla sem brann í mars á þessu ári.
Fjárhagsrammi vegna viðhalds leik- og grunnskóla í Reykjavík í ár er 1,7 milljarðar króna. Að auki er sérstök fjárveiting af fjárfestingalið vegna stærri verkefnanna eins og endurgerðar á þökum.
Hér fyrir neðan er listi yfir þau verkefni sem unnið hefur verið að á þessu ári. Þessar upplýsingar byggjast á skriflegum svörum frá Reykjavíkurborg. Verkefnunum er skipt niður í verkefni á framkvæmdastigi, verk í undirbúningi og verkefni sem lokið er.
Fossvogsskóli
Viðgerðum og viðhaldi er lokið í tveimur hlutum skólans (Austur- og Meginlandi) og skólastarf hafið í þeim hlutum. Viðgerðum í Vesturlandi verður lokið í desember 2019. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæði skólans auk þeirra viðgerða. Settur var upp glerveggur í bókasafni og unnið er að endurbótum á lóð. Grafið er með suðurhlið skólans sem eykur birtu í mötuneyti. Einnig er unnið að stækkun á leiksvæði frístundar á skólalóð. Áætluð verklok lóðaframkvæmda er í desember 2019.
Loftgæða og sýnatökur hafa verið gerðar. Endanlegur kostnaður við framkvæmdir liggur ekki fyrir.
Breiðholtsskóli
Framkvæmdum er lokið við átta skólastofur sem teknar voru í notkun á 2. september. Framkvæmdum við hinn hluta álmunnar lýkur í nóvember 2019. Framkvæmdirnar sem farið var í byggja á loftgæðamælingum og sýnatökum sem gerðar voru í vor.
Áætlaður kostnaður við Breiðholtsskóla er 100 milljónir króna.
Ártúnsskóli
Vinna við að skipta út þaki á aðalbyggingu skólans hefst innan tíðar. Útboð var auglýst 31. ágúst. Áætluð verklok eru í desember 2019. Röskun á skólastarfinu verður minniháttar og ekki þarf að flytja starfsemi úr skólanum.
Loftgæðamælingar og sýnatökur voru gerða og fannst ekkert í þeim sýnum annað en staðbundnar rakaskemmdir sem eru þar sem leki hefur verið í þaki. Þakið verður endurnýjað nú á haustmánuðum. Kostnaður við framkvæmdir liggur ekki fyrir.
Laugarnesskóli
Viðgerðir hófust á haustmánuðum 2018 og lýkur þeim núna í september 2019. Framkvæmdin byggði á loftgæðamælingum og sýnatökum.
Kostnaður fellur undir almennt viðhald.
Langholtsskóli
Markvissar og staðbundnar viðgerðir hafa verið unnar í skólanum og verið er að greina skólann með loftgæðamælingum og sýnatökum. Unnið var í gluggum í sumar vegna leka.
Tónabær, félagsmiðstöð
Framkvæmdir í framhaldi af mælingum loftgæða og sýnatökum hófust í vor. Þær eru á lokastigi.
Miðberg, frístundaheimili
Starfsemi er flutt í annað húsnæði vegna rakaskemmda. Áætlað er að endurgera alla hæðina. Loftgæði voru mæld og sýni tekin.
Furuborg, leikskóli
Verið er að byrja á framkvæmdum í leikskólanum og er áætlað að þeim ljúki í febrúar 2020. Loftgæði voru mæld og sýni tekin.
Sunnuborg, leikskóli
Farið var í loftgæða- og sýnatöku í lok árs 2018. Farið hefur verið yfir loftgæði og greiningu á þeim stöðum þar sem úrbóta er þörf. Til stendur að skipta um glugga á austurhlið. Gögn fyrir útboð gluggaviðgerðar eru tilbúin. Verið er að undirbúa framkvæmdir. Áætluð verklok í mars 2020.
Hlíðaskóli
Viðgerðir á gluggum austurhliðar á byggingu númer 4 er lokið. Byrjað var á verkinu 2018 og lauk því verki nú í ár. Í framhaldi var farið í viðgerðir innanhúss í þeim stofum sem urðu fyrir rakaskemmdum og er þeirri vinnu einnig lokið. Loftgæðamælingar voru gerðar og sýni tekin.
Klébergsskóli
Þakjárn ásamt þakkanti og rennum var endurnýjað haustið 2018. Vinnu lauk í byrjun árs 2019.
Austurborg, leikskóli
Járn á þaki var endurnýjað og einangrun, rakasperru og loftaklæðningu var skipt út. Framkvæmdum lokið 2019.
Ölduselsskóli
Rakaskemmdir greindust í bókageymslu í kjallara í vor og er þeim viðgerðum lokið. Byggt var á loftgæða- og sýnatökum.
Ársel, frístundaheimili
Eftir kvörtun starfsmanna vegna loftgæða voru þau mæld og tekin sýni. Í framhaldi var skipt um þakjárn á byggingunni ásamt því að endurnýja og fara yfir einangrun og rakasperru í þakinu. Búið að skipta um jarðveg við húsið og drenlagnir, sem og fara yfir frárennslislagnir utanhúss.
Hagaskóli
Kvartað var yfir loftgæðum í kennslustofum. Sett hafa verið upp ný loftræsikerfi og blásarar í skólann, auk þess sem opnanlegum gluggafögum var fjölgað. Loftgæðamælingar voru gerðar og sýni tekin.
Hagaskóli íþróttahús
Skipt var um þak á íþróttahúsinu 2018 og lauk þeirri vinnu nú í ár.
Fellaskóli
Rakaskemmdir í kjallara. Skipt var um jarðveg og drenlagnir utanhúss. Dúkar endurnýjaðir og málað, ásamt öðru viðhaldi innanhúss.
Foldaskóli
Skipt um þak á elsta hluta skólans og endurnýjaður þakdúkur á tengibyggingu. Vinnu er lokið. Loftgæði voru mæld og sýni tekin.