Leggja til leyfi fyrir stækkun eldis

MAST hefur gert tillögu a leyfi fyrir fiskeldi á landi …
MAST hefur gert tillögu a leyfi fyrir fiskeldi á landi í Strandabyggð. mbl.is/Sigurður Bogi

Mat­væla­stofn­un hef­ur unnið til­lögu að rekstr­ar­leyfi fisk­eld­is á landi 'a Nauteyri í Stranda­byggð fyr­ir Háa­fell ehf. Um er að ræða stækk­un á eldra rekstr­ar­leyfi úr 200 tonna seiðaeldi á laxi og regn­bogsil­ungi í 800 tonna seiðaeldi á laxi og regn­bogasil­ungi, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu frá stofn­un­inni.

Til­laga Mat­væla­stofn­un­ar kem­ur að verða fjór­um árum eft­ir að Skipu­lags­stofn­un tók ákvörðun um að fram­kvæmd­in þyrfti ekki að fara í um­hverf­is­mat. Niðurstaða stofn­un­ar­inn­ar var að „helstu nei­kvæðu áhrif fram­kvæmd­ar­inn­ar séu sjón­ræn áhrif sem fylgi nýj­um mann­virkj­um tengd­um auk­inni fram­leiðslu. Mik­il­vægt er að vel verði vandað til hönn­un­ar og frá­gangs til að þau falli sem best að landi“.

mbl.is