„Ég ákvað hver ég vildi verða og það er sú sem ég er,“ sagði Gabrielle Chanel og ítrekaði að ekkert væri mikilvægara en frelsið. Nýtt ilmvatn Chanel nefnist Gabrielle Chanel Essence og heldur áfram að endurspegla sögu hennar í gegnum ilm sem einkennist af hvítum blómum. Appelsínublóm, ylang-ylang, tuberose og jasmín koma saman úr verður glitrandi kvenlegur og fágaður ilmur.
Óskarsverðlaunaleikkonan og leikstjórinn Margot Robbie er andlit ilmvatnsins en hún einmitt endurspeglar frjálsa konu sem hefur uppgötvað hver hún vill vera og tekur örlögin í sínar hendur. Árið 2017 kom hið upprunalega Gabrielle Chanel Eau de Parfum á markað og endurspeglaði líf Chanel fyrir hátískuárin. Gabrielle Chanel Essence Eau de Parfum byggist á þeim ilmi en þó með aukinni áherslu á að endurspegla útgeislun Chanel á yngri árum með hreinum og tindrandi ilmnótum.
Samhliða nýja ilmvatninu kemur sérstök ferðaútgáfa af Gabrielle Chanel Eau de Parfum. Í pakkningunni eru 3 x 20 ml í hentugum umbúðum sem passa í handtöskuna. Umbúðirnar eru sérlega skemmtilegar; þú einfaldlega snýrð toppnum og upp kemur spreyið.
Til að toppa ilmupplifunina kemur Gabrielle Chanel Parfum Cheveux, hárilmvatn sem þú getur spreyjað á hárburstann þinn eða beint yfir hárið.
Lagið Halo með Beyoncé hljómar undir í auglýsingu Gabrielle Chanel Essence.