Donald Trump Bandaríkjaforseti er reiðubúinn að funda með Hassan Rouhani Íransforseta án nokkurra skilyrða. Trump vill þó halda áfram að setja „mikla pressu“ á stjórnvöld í Teheran, samkvæmt Steven Mnuchin, fjármálaráðherra Bandaríkjanna.
Samskipti Bandaríkjanna og Írans hafa verið eldfim frá því að Bandaríkjastjórn dró ríkið úr samningi um kjarnorkuáætlun Írans sem undirritaður var 2015 en Trump hefur innleitt nýjar refsiaðgerðir gegn Íran.
„Forsetinn hefur gert það ljóst að hann myndi glaður funda án skilyrða. Við höldum hins vegar pressunni áfram,“ sagði Mnuchin í dag.