Samstarfsyfirlýsing um fiskeldismál

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, og T. Armstrong Changsan, …
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, og T. Armstrong Changsan, sendiherra Indlands á Íslandi. Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon

Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs og land­búnaðarráðherra, og T. Armstrong Changs­an, sendi­herra Ind­lands á Íslandi, hafa und­ir­ritað sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu um sjáv­ar­út­vegs- og fisk­eld­is­mál.

Þetta kem­ur fram á vef Stjórn­ar­ráðs Íslands.

Mark­mið yf­ir­lýs­ing­ar­inn­ar er að efla sam­starf og sam­vinnu á sviði rann­sókn­ar og þró­un­ar í sjáv­ar­út­vegs­mál­um, þá sér­stak­lega að ýta und­ir sam­starf ís­lenskra og ind­verskra fyr­ir­tækja á þess­um vett­vangi.

Í sam­starfs­yf­ir­lýs­ing­unni er vikið að mik­il­vægi fisk­veiðistjórn­unn­ar, sjálf­bærra veiða og um­hverf­is­sjón­ar­miða sem og full­nýt­ingu afurða og há­mörk­un verðmæta þeirra.

„Í þessu sam­starfi geta fal­ist mik­il­væg tæki­færi fyr­ir ís­lensk fyr­ir­tæki til að hasla sér völl á þeim sís­tækk­andi markaði sem Ind­land er. Um leið er þetta tæki­færi til að miðla af reynslu Íslend­inga þegar kem­ur að hag­kvæmri fisk­veiðistjórn­un, sjálf­bær­um veiðum og full­nýt­ingu afurða,“ sagði Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra.

mbl.is