Ást er ný þáttaröð sem fjallar um allt sem viðkemur ást og ástarsamböndum. Kristborg Bóel Steindórsdóttir og Kolbrún Pálína Helgadóttir koma að heimildaþáttunum sem eru framleiddir hjá Sagafilm. Í þáttunum er rætt um ástarsambönd og allt sem fylgir þeim.
Í þriðja þætti er farið yfir allar hliðar kynlífs í ástarsamböndum. Mörg pör upplifa að kynlífið breytist þegar líða tekur á sambandið og eiga erfitt með að finna samhljóm milli erótíkur og vináttu. Hvernig eiga pör að stjórna löngunum sínum? Hvernig á fólk að takast á við framhjáhald? Og hvernig hafa pör tekist á við slík mál? Er hægt að byggja upp fullt traust eftir að svik hafa átt sér stað?
Öll serían, eða samtals sjö þættir, verða fáanlegir í Sjónvarpi Símans Premium á morgun.