Vilja fá eftirlit með fiskeldinu vestur á firði

Bjarnveig Guðbrandsdóttir sinnir skólabörnum í sundlaug og íþróttahúsi á vetrum …
Bjarnveig Guðbrandsdóttir sinnir skólabörnum í sundlaug og íþróttahúsi á vetrum og ferðafólki á tjaldsvæði og í sundi á sumrin. mbl.is/Helgi Bjarnason

„Við vilj­um fá eft­ir­lit með fisk­eldi hingað á svæðið, þar sem eldið er stundað. Það yrði betra fyr­ir lax­eld­is­fyr­ir­tæk­in og sveit­ar­fé­lög­in hafa kallað eft­ir því,“ seg­ir Bjarn­veig Guðbrands­dótt­ir, odd­viti Tálkna­fjarðar­hrepps.

Fjöldi starfa hef­ur skap­ast við lax­eldi í Tálknafirði og Vest­ur­byggð. Tvær seiðaeld­is­stöðvar hafa verið byggðar upp í firðinum, Arn­ar­lax í Bæj­ar­vík og Arctic Fish í Norður-Botni en Bjarn­veig nefn­ir þá síðar­nefndu Costco Tálkna­fjarðar vegna stærðar húss­ins. Þá hafa bæði fyr­ir­tæk­in hafið lax­eldi í firðinum og komið sér upp aðstöðu í þorp­inu. 

Geta snúið aft­ur heim

„Fólk fær vinnu við þetta, bæði þeir sem vilja búa hér áfram og þeir sem farið hafa í burtu, til dæm­is í fisk­eld­is­nám, og geta nú snúið heim aft­ur,“ seg­ir Bjarn­veig. Hún seg­ir að fisk­eldið hafi komið á góðum tíma því það hafi verið áfall þegar Þórs­berg lokaði fisk­vinnslu sinni á ár­inu 2015 og seldi kvót­ann í burtu. Fólk þurfi að hafa vinnu, ann­ars flytji það sig eitt­hvað annað.

Hún get­ur þess einnig að mik­il um­svif fylgi upp­bygg­ingu fisk­eld­is­ins sem nýt­ist öðrum fyr­ir­tækj­um. Fólkið sem við það vinn­ur þurfi að gista og borða og það hafi hjálpað ferðaþjón­ust­unni.

Á þönum með pos­ann

Bjarn­veig er hrif­in af hug­mynd­inni um að íbú­ar lands­byggðar­inn­ar fái skatta­afslátt. Það yrði hvatn­ing til fólks um að flytja út á land. „Það er orðið svo mikið öngþveiti í Reykja­vík en slík hvatn­ing gæti orðið til þess að fólk vildi stíga skrefið og flytja út á land,“ seg­ir hún.

Bjarn­veig er for­stöðumaður íþrótta­mann­virkja á Tálknafirði og rekst­ur tjaldsvæðis­ins fell­ur und­ir henn­ar verksvið. Hún seg­ir að ferðaþjón­ust­an hafi gengið mjög vel í sum­ar. Þannig hafi verið nærri 4.100 gest­ir á tjaldsvæðinu í júlí, mest Íslend­ing­ar. „Ég var á stöðugum þönum með pos­ann,“ seg­ir hún. Tjaldsvæðið er við sund­laug­ina og þykir aðstaðan góð. Þannig hafi verið met í aðsókn að sund­laug­inni marga daga í sum­ar.

Grein­in birt­ist upp­haf­lega í Morg­un­blaðinu 16. sept­em­ber.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: