Fjölmenn mótmæli fyrir loftslagið

Mótmælendur gengið var fylktu liði frá Hallgrímskirkju niður á Austurvöll.
Mótmælendur gengið var fylktu liði frá Hallgrímskirkju niður á Austurvöll. mbl.is/​Hari

Fjöl­marg­ir tóku þátt í lofts­lags­mót­mæl­um í dag sem hóf­ust kl. 17 þegar gengið var fylktu liði frá Hall­gríms­kirkju niður á Aust­ur­völl. Fund­ur­inn lagði fram áskor­un til stjórn­valda og und­ir­skrifta­söfn­un vegna henn­ar var sett form­lega í loftið.

Fund­inn ávörpuðu meðal annarra: Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar, Hild­ur Knúts­dótt­ir rit­höf­und­ur, Sæv­ar Helgi Braga­son stjörnu­fræðing­ur, Ey­dís Blön­dal rit­höf­und­ur. Tón­listar­fólkið Friðrik Dór, Högni Eg­ils­son, GDRN og Krummi sá um tón­listar­flutn­ing.    

Yfir 5.000 lofts­lags­verk­föll eru fyr­ir­huguð í yfir 150 lönd­um í dag. Alls­herj­ar­verk­föll í dag mark­a upp­haf alþjóðlegr­ar lofts­lagsviku sem til­einkuð er bar­áttu fyr­ir aðgerðir gegn lofts­lags­vánni en henni lýk­ur 27. sept­em­ber með öðru alls­herj­ar­verk­falli fyr­ir lofts­lagið.

Fjöl­menn­ustu mót­mæl­in verða að öll­um lík­ind­um í New York þar sem bú­ist er við að yfir millj­ón nem­end­ur við 1.800 skóla taki þátt.

Þátttakendur í allsherjar verkfalli vegna loftslagsvárinnar.
Þátt­tak­end­ur í alls­herj­ar verk­falli vegna lofts­lags­vár­inn­ar. mbl.is/​​Hari
mbl.is