Landsréttur þyngdi dóm í nauðgunarmáli yfir Helga Fannari Sæþórssyni. Hann var dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar fyrir að nauðga konu í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina árið 2015. Honum var gert að greiða konunni 1,6 milljónir króna í miskabætur. Dómurinn var kveðinn upp í dag.
Í dómi Hérðasdóms Reykjaness 5. júní árið 2018 var hann dæmdur í 20 mánaða fangelsi og gert að greiða konunni 1,5 milljónir króna í miskabætur. Ríkissaksóknari skaut málinu til Landsréttar 15. júní 2018 í samræmi við yfirlýsingu mannsins um áfrýjun. Hann krafðist sýknu og að einkaréttarkröfu brotaþola yrði vísað frá.
Auk miskabóta þarf Helgi að greiða allan áfrýjunarkostnað málsins, 1.277.595 krónur, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda sín sem nemur 843 þúsund krónum að auki þóknun réttargæslumanns konunnar sem er 390 þúsund krónur.
Konan og Helgi kynntust í Herjólfi á leið á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum á fimmtudegi 31. júlí árið 2015. Hann bauð konunni og vinum hennar að gista á sama svæði á tjaldsvæði í Herjólfsdal og þáðu þau það. Á fimmtudagskvöldi munu Helgi, konan og vinir þeirra hafa farið á Húkkaraball. Konan og Helgi gistu saman í tjaldi að því loknu en ekkert mun hafa farið þeim á milli.
<span>Á föstudegi var drykkja hafin um hádegi og að sögn konunnar og annarra vitna mun hún hafa drukkið mjög mikið og dáið áfengisdauða í brekkunni. Helgi mun hafa boðist til að fara með hana í tjald sitt og hafði þar samræði við hana. Taldi hann að það væri með vilja hennar en hún kveðst ekki muna eftir atvikinu. Þá mun vinur konunnar hafa komið að þeim í tjaldinu og sagði hann augljóst að hún hefði verið án meðvitundar.</span>
<span>Daginn eftir var konan ítrekað spurð af fyrrgreindum vini hvort hún hefði sofið hjá Helga en kvað hún svo ekki hafa verið. Vinur hennar sagði henni þá að hann hefði komið að henni og Helga og var henni mjög brugðið. Helgi mun síðar hafa rætt við konuna, verið hræddur um að hann hefði brotið á henni og beðist afsökunar.</span>
<span>Konan leitaði á lögreglustöð 6. ágúst 2015 og lagði fram kæru gegn Helga Fannari. <span>Ákært var í málinu 22. janúar árið 2018 og var málið dómtekið 9. maí sama ár. Þremur árum eftir nauðgunina. </span></span>