Fyrsti laxinn án tolla fer til Kína

Laxi pakkað fyrir Arctic Fish í sláturhúsi Arnarlax á Bíldudal.
Laxi pakkað fyrir Arctic Fish í sláturhúsi Arnarlax á Bíldudal. mbl.is/Helgi Bjarnason

Toll­frjáls aðgang­ur fyr­ir lax á Kína­markaði hef­ur mikla þýðingu fyr­ir ís­lenskt fisk­eldi, að sögn Sig­urðar Pét­urs­son­ar, fram­kvæmda­stjóra hjá Arctic Fish á Vest­fjörðum.

Hærra verð fæst fyr­ir hágæða lax á þess­um markaði en í Evr­ópu og ís­lensku lax­eld­is­fyr­ir­tæk­in fá auk þess hærra skila­verð en eld­is­fyr­ir­tæki í öðrum Evr­ópu­ríkj­um.

Íseyj­an þekkt á Kína­markaði

Til­rauna­send­ing af laxi úr eldisk­ví­um Arctic Fish í Dýraf­irði fór í gær með flugi frá Kefla­vík áleiðis til Shang­hai í Kína. Er þetta fyrsti lax­inn sem seld­ur er til Kína eft­ir að fríversl­un­ar­samn­ing­ur þjóðanna frá ár­inu 2013 tók gildi varðandi eldisaf­urðir og viðeig­andi skrán­ing­um var lokið.

„Eins og staðan er núna er Asíu­markaður að greiða einna hæsta verðið fyr­ir gæðaaf­urðir, þónokkuð hærra verð en fæst á Evr­ópu­markaði. Þá veit­ir fríversl­un­ar­samn­ing­ur­inn okk­ur tæki­færi til að selja inn á toll­frjáls­an markað sem ætti að skila okk­ur 10-12% hærra skila­verði,“ seg­ir Sig­urður Pét­urs­son.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: