Mikill vöxtur í fiskeldi á næstu árum

Mestallt fiskeldi hér á landi er annars vegar á Vestfjörðum …
Mestallt fiskeldi hér á landi er annars vegar á Vestfjörðum og hins vegar á Austfjörðum og skiptist tiltölulega jafnt milli þessara tveggja landsvæða. mbl.is/Helgi Bjarnason

Útlit er fyr­ir að fisk­eldi tvö­fald­ist á næstu tveim­ur árum. Útflutn­ings­verðmæti fisk­eld­is gæti orðið um 40 millj­arðar árið 2021 eða sem nem­ur hátt í 3% af heild­ar­út­flutn­ingi. Lík­legt er að mik­ill vöxt­ur haldi áfram í ein­hver ár eft­ir 2021.

Þetta kem­ur fram á vef Stjórn­ar­ráðsins. 

Þar seg­ir að fisk­eldi hafi auk­ist mikið á und­an­förn­um árum og verði vöxt­ur á næstu árum, einkum í lax­eldi, jafn­mik­ill og út­lit sé fyr­ir muni hann hafa telj­andi áhrif í þjóðhags­legu sam­hengi. Það sem af er ári er vöxt­ur í út­flutn­ings­verðmæti milli ára um 60%. Útflutn­ings­verðmæti fisk­eld­is verður lík­lega hátt í 20 ma.kr í ár eða sem nem­ur ríf­lega 1% af heild­ar­út­flutn­ingi. Á þessu ári hafa sam­an­lagðar fram­leiðslu­heim­ild­ir í fisk­eldi nær tvö­fald­ast og eru nú um 85 þús. tonn á ári miðað við út­gef­in starfs­leyfi Um­hverf­is­stofn­un­ar. Það tek­ur rekstr­araðila um tvö ár að kom­ast í fulla fram­leiðslu­getu, að því er ráðuneytið grein­ir frá.

Grafík/​Stjórn­ar­ráðið

Mest­allt fisk­eldi hér á landi er ann­ars veg­ar á Vest­fjörðum og hins veg­ar á Aust­fjörðum og skipt­ist til­tölu­lega jafnt milli þess­ara tveggja landsvæða.

Meðfylgj­andi mynd sýn­ir spá um þróun í fisk­eldi á næstu árum. Gangi áform eft­ir eru lík­ur á að sam­an­lögð fram­leiðsla tvö­fald­ist til árs­ins 2021. Miðað við óbreytt afurðaverð þýðir þetta að út­flutn­ings­verðmæti fisk­eld­is gæti orðið um 40 ma.kr. árið 2021. Það nem­ur hátt í 3% af heild­ar­út­flutn­ingi og slag­ar upp í verðmæti alls upp­sjáv­ar­fisks í fyrra. Spá­in er vit­an­lega háð óvissu um gang mála hjá ein­stök­um fram­leiðend­um.

Miðað við þær starfs­leyf­is­um­sókn­ir sem eru til skoðunar mun vöxt­ur fisk­eld­is lík­lega halda áfram eft­ir árið 2021. Það er þó tak­markað hversu mik­inn fisk er hægt að fram­leiða í ein­stök­um fjörðum og víða eru sam­an­lagðar heim­ild­ir að nálg­ast þol­mörk fjarðanna. Þrátt fyr­ir það er ekki úti­lokað að fram­leiðslu­verðmætið geti auk­ist um nokkra tugi millj­arða til viðbót­ar á ár­un­um eft­ir 2021.

mbl.is