Ást er ný heimildaþáttaröð sem fjallar um ást og ástarsambönd. Leikstjóri þáttanna er Haukur Björgvinsson en í sjötta þætti eru sálræn atriði skoðuð í kjölfar skilnaðar.
Þekkt er að fólk upplifir mjög miklar sveiflur, geðraskanir, minnistap og líður illa líkamlega eftir skilnað. Í þættinum er rætt við barnasálfræðinga og hvernig best er haga hlutnum eftir skilnað ef börn eru í spilinu.
Kristborg Bóel Steindórsdóttir og Kolbrún Pálína Helgadóttir unnu hugmyndavinnu þáttanna sem eru framleiddir hjá Sagafilm. Öll serían, eða samtals sjö þættir, verða fáanlegir í Sjónvarpi Símans Premium á morgun.