Lífshættulegur þurrkur blasir við stærstu óseyri heims

00:00
00:00

Lífs­hættu­leg­ur þurrk­ur blas­ir við dýra­teg­und­um í Oka­vango í Botsvana, stærstu óseyri í heimi. Naut­grip­ir, flóðhest­ar og fíl­ar eru meðal dýra­teg­unda á svæðinu og nú er lífsviður­væri þeirra stofnað í hættu. 

Botsvana er landl­ukt og segja bænd­ur í ná­grenn­inu að stjórn­völd hafi lofað að dæla vatni í óseyr­ina til að reyna að bæta úr ástand­inu en bænd­urn­ir hræðast að úr verði eitt stórt drullu­svað. 

Oka­vango er á heims­minja­skrá UNESCO og er heim­kynni mik­ils dýra­lífs og dreg­ur að þúsund­ir ferðamanna á hverju ári. Þar er til að mynda að finna stærstu frjálsu fíla­hjörð í Afr­íku. 

Flóðhestur sem drapst af völdum þurrka í Nxaraga- þorpi í …
Flóðhest­ur sem drapst af völd­um þurrka í Nx­araga- þorpi í Botsw­ana. Lífs­hættu­leg­ur þurrk­ur blas­ir við dýra­teg­und­um í Oka­vango í Botsvana, stærstu óseyri í heimi. AFP

Óseyr­in var eitt sinn hluti af ánni Mak­ga­dik­ga­di, en hún þornaði upp fyr­ir 10.000 árum. Í dag er ekk­ert út­rennsli frá Oka­vango til sjáv­ar. Þess í stað renn­ur áin út á sanda Kala­hari eyðimerk­ur­inn­ar sem þekur um 15,000 km² svæði.

„Þurrk­ur­inn hef­ur al­var­leg áhrif þar sem allt beiti­land og vatn er að hverfa,“ seg­ir Banyatsang, bóndi á svæðinu.

Sam­kvæmt nýrri skýrslu Global Comm­issi­on on Adaptati­on (GCA), sem unn­in var að beiðni 18 ríkja, er heim­ur­inn sagður vera „illi­lega ófull­nægj­andi“ bú­inn und­ir óumflýj­an­leg­ar af­leiðing­ar lofts­lags­vár­inn­ar. 

Okavango er á heimsminjaskrá UNESCO og er heimkynni mikils dýralífs. …
Oka­vango er á heims­minja­skrá UNESCO og er heim­kynni mik­ils dýra­lífs. Þar er til að mynda að finna stærstu frjálsu fíla­hjörð í Afr­íku. AFP
mbl.is