Nýtt skip ráði við íslensk skilyrði

Bjarni Sæmundsson RE verður 50 ára á næsta ári og …
Bjarni Sæmundsson RE verður 50 ára á næsta ári og hafur skipið þjónað hlutverki sínu vel. Nýtt skip sem mun taka við af Bjarna verður ekki fullsmíðað fyrr en 2021 og verður hlaðið nýjungum. mbl.is/Þorgeir

Lang­ur aðdrag­andi hef­ur verið að því að smíðað verði nýtt haf­rann­sókna­skip til þess að leysa af eldra skip Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, Bjarna Sæ­munds­son, að sögn Friðriks J. Arn­gríms­son­ar, for­manns smíðanefnd­ar. „Starfs­menn Haf­rann­sókna­stofn­un­ar eru nú með sér­fræðing­um, sem hafa unnið lengi með stofn­un­inni, að móta það skip sem verður boðið út. Það er verið að frum­hanna skipið og þegar smíðalýs­ing ligg­ur fyr­ir verður verkið boðið út,“ seg­ir Friðrik.

Ný­lega var und­ir­ritað sam­komu­lag milli Haf­rann­sókna­stofn­un­ar og Rík­is­kaupa um útboð, enn er þó nokkuð í land með að smíðin fari í útboð, að sögn for­manns­ins. Gert er ráð fyr­ir að smíði nýs rann­sókna­skips fari fram á ár­un­um 2020 og 2021. Þá er kostnaður áætlaður 3,2 millj­arðar króna.

Friðrik seg­ir skipa­smíðina byggj­ast á sam­hæfðum regl­um alþjóðlegra flokk­un­ar­fé­laga sem þarf að upp­fylla og að það „verða gerðar rík­ar kröf­ur til þeirra skipa­smíðastöðva sem kem­ur til greina að smíði skipið“. Hann seg­ir lengi hafa verið rætt um smíði nýs haf­rann­sókna­skips og það sé fagnaðarefni að nú skuli það vera að verða að veru­leika, en tel­ur að sú fjár­veit­ing sem ætluð er til smíðinn­ar sé á mörk­un­um.

Friðrik J. Arngrímsson.
Friðrik J. Arn­gríms­son. Ljós­mynd/​Sig­ur­geir Sig­urðsson

Haf­rann­sókna­stofn­un er að leita eft­ir fjöl­nota skipi sem get­ur veitt með bæði botn­vörpu og flot­vörpu, get­ur berg­máls­mælt fiski­stofna auk þess að geta sinnt öðrum haf­rann­sókn­um, tekið sjó­sýni, botn­sýni, svif­sýni og notað neðan­sjáv­ar­mynda­vél­ar, að því er fram kem­ur í svari við fyr­ir­spurn 200 mílna. Þar seg­ir jafn­framt að skipið þurfi að ráða við þau skil­yrði sem ríkja á hafsvæðinu hér við land.

„Það er vitað hvað nýja skipið á að gera,“ seg­ir Friðrik. „Við erum að glíma við mjög erfiðar aðstæður hér við Ísland; bæði veðurfar og sjó­lag. Þetta þarf að vera nægj­an­lega stórt og öfl­ugt skip til að ráða við þau verk­efni sem því eru ætluð. Þá er mik­il­vægt að skipið fari vel með áhöfn og rann­sókn­ar­fólk. Við mun­um leggja áherslu á að upp­fylla öll þessi skil­yrði og jafn­framt hafa í huga að skipið verð hag­kvæmt í rekstri, en auðvitað erum við bund­in af fjár­veit­ing­um,“ út­skýr­ir hann.

Bjarni gott skip

Spurður hvort skipið Bjarni Sæ­munds­son hafi reynst vel þrátt fyr­ir ald­ur og fyrri störf svar­ar Friðrik: „Ég myndi hik­laust svara já. Þetta er gott skip sem hef­ur skilað miklu, en auðvitað hafa þarf­irn­ar og kröf­urn­ar breyst. Hann er auðvitað barns síns tíma, en þetta er hag­kvæmt skip. Það sem er mjög mik­il­vægt í þess­um rann­sókna­skip­um er að þau séu hljóðlát og þess vegna eru þau búin þannig að þau hafa ekki hefðbund­inn fram­drifs­búnað sem sam­an­stend­ur af vél, gír og skrúfu. Þessi rann­sókna­skip eru með vél­ar sem fram­leiða inn á raf­mótor sem knýr síðan öxul­inn og skrúf­una. Bjarni er þannig byggður.“

Rann­sókna­skipið Bjarni Sæ­munds­son var smíðað í Þýskalandi árið 1970 og af­hent Haf­rann­sókna­stofn­un 17. des­em­ber sama ár. Um var að ræða fyrsta skipið sem var knúið af raf­vél­um sem fá afl sitt frá dísil­vél­um. Skipið er 56 metra langt og 10,6 metra breitt, dýpt af efra þilfari er sjö metr­ar. Í skip­inu eru þrjár vél­ar og ef keyrt er á öll­um vél­um er gang­hraði skips­ins um 12 sjó­míl­ur. Á skip­inu er 14 manna áhöfn og auk þess er aðstaða fyr­ir 13 vís­inda- og rann­sókn­ar­menn.

„Höf­um eignazt full­komið haf­rann­sókna­skip“ var fyr­ir­sögn í Morg­un­blaðinu er skipið kom til Reykja­vík­ur. Þá sagði í um­fjöll­un­inni að „öll fiski­leit­ar­tæki, dýpt­ar­mæl­ar, loft­skeyta­tæki og tal­kerfi eru frá A/​S Simon­sen Radio (Simrad). Ýmis ný tæki eru í þessu skipi, sem ým­ist hafa ekki verið sett í ís­lenzk skip áður eða eru þá al­veg ný af nál­inni“.

Skipið verður 50 ára á næsta ári og hef­ur borið á gagn­rýni vegna ald­urs tækja­búnaðar og áhalda skips­ins. Meðal ann­ars lagði Bjarni í loðnu­leiðang­ur 11 dög­um seinna en áætlað var árið 2017 sök­um þess að bil­un varð í einni stjórn­tölvu fyr­ir vél skips­ins, en stýri­búnaður­inn er frá 2004. Þá voru aðal­vél­arn­ar end­ur­nýjaðar sama ár og gert ráð fyr­ir að skipið yrði gert út í 10 til 12 ár. Ýmiss kon­ar búnaður og tæki, inn­rétt­ing­ar og fleira hafði því ekki verið end­ur­nýjað á þeim tíma.

Árni Friðriksson RE er að verða 20 ára og talið …
Árni Friðriks­son RE er að verða 20 ára og talið að stytt­ist í að þurfi nýtt skip í hans stað, enda kröf­urn­ar aðrar nú en þá. mbl.is/Þ​or­geir

Árni eld­ist

Bjarni var hins veg­ar ekki fyrsta sér­smíðaða rann­sókna­skip Íslend­inga, en það var Árni Friðriks­son RE 100 sem kom til hafn­ar árið 1967. Nýr Árni kom til lands­ins árið 2000 og var skipið smíðað í Asm­ar-skipa­smíðistöðinni í Síle. Skipið, sem verður 20 ára á næsta ári, er 70 metra langt og 14 metra breitt. Vél­arn­ar eru fjór­ar og meðal­gang­hraði er um 13 sjó­míl­ur en há­marks­gang­hraði um 16 sjó­míl­ur.

Þá seg­ir á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar að Árni Friðriks­son RE 200 sé „sér­smíðað til haf­rann­sókna og er meðal ann­ars búið fjöl­geisladýpt­ar­mæli og jarðlaga­mæli til kort­lagn­ing­ar sjáv­ar­botns­ins, sem end­ur­nýjaðir voru vorið 2017. Einnig er í skip­inu búnaður til sam­b­urðar­rann­sókna á veiðarfær­um. Skipið er ein­stak­lega hljóðlátt og búið full­komn­ustu tækni til berg­máls­mæl­inga sem völ er á“. Þá hef­ur skipið aðstöðu fyr­ir 33, þar af 18 manna áhöfn og 15 vís­inda- og rann­sókn­ar­menn.

Í fyrra samþykktu Sjó­manna­sam­band Íslands, Fé­lag skip­stjórn­ar­manna, Fé­lag vél­stjóra og málm­tækni­manna og Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi sam­eig­in­lega álykt­un þar sem skorað var á stjórn­völd að kaupa skip í stað haf­rann­sókna­skips­ins Bjarna Sæ­munds­son­ar og huga strax að skipi til að taka við af Árna Friðriks­syni. Var sagt að stjórn­völd hefðu van­rækt skyldu sína til að sjá til þess að haf­rann­sókn­ir við landið væru ætíð í fremstu röð.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: