Þúsundir mótmæla grímubanni í Hong Kong

Mótmælendur í Hong Kong hafa verið duglegir að brenna kínverska …
Mótmælendur í Hong Kong hafa verið duglegir að brenna kínverska fánann. AFP

Þúsundir hafa tekið þátt í óskipulögðum mótmælum í Hong Kong í dag eftir að ríkisstjóri Hong Kong tilkynnti setn­ingu neyðarlaga í borg­rík­inu sem leggja bann við því að fólk beri and­lits­grím­ur. 

Víðtæk mótmæli brutust strax út eftir tilkynningu ríkisstjórans. Margir fóru snemma heim úr vinnu til að taka þátt í mótmælunum og mikill mannfjöldi sem aðallega samanstóð af skrifstofufólki safnaðist saman og lokaði vegum. Einhverjir mótmæltu með því að kveikja í kínverskum fánum. 

Banninu er ætlað að draga úr mótmælum í Hong Kong en fyrsta október skaut lögreglumaður fjórtán ára gamlan mótmælanda í fótinn. Hann liggur á spítala og er ástand hans alvarlegt. 

Mót­mæli hafa staðið yfir reglu­lega síðan snemma í júní og hef­ur of­beldi færst í vöxt í kring­um þau und­an­farið. Í upp­hafi beind­ust mót­mæl­in gegn um­deild­um lög­um um framsal saka­manna. 

mbl.is