Umhverfisgjöld á flugmiða „góð hugmynd“

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Mér finnst þetta góð hug­mynd,“ seg­ir Guðmund­ur Ingi Guðbrands­son, um­hverf­is- og auðlindaráðherra, um hug­mynd Dönsku flug­mála­sam­tak­anna þess efn­is að lagt verði sér­stakt um­hverf­is­gjald á all­ar flug­ferðir frá Dan­mörku.

Fram kem­ur í frétt RÚV að Guðmund­ur seg­ir að það þurfi að skoða all­ar hug­mynd­ir þegar komi að lofts­lags­mál­um.

Það komi til greina að leggja sér­stök gjöld á flug­f­arþega sem miðuð verði við meng­un flug­leiðar.

Hug­mynd Dönsku flug­mála­sam­tak­anna snýr að því að gjaldið sé í sam­ræmi við hversu mik­il um­hverf­isáhrif viðkom­andi flug­ferð hef­ur og bú­ist er við að ár­lega muni safn­ast á bil­inu 250 - 300 millj­ón­ir danskra króna í óháðan lofts­lags­sjóð.

mbl.is