Ung kona var á dögunum sektuð á Filippseyjum fyrir að klæðast of litlu bikiníi. Konan, sem er ferðamaður frá Taívan, var tilkynnt til lögreglu á eyjunni Boracay.
Klæðaburður hennar hafði þá farið fyrir brjóstið á einhverjum borgurum. Lögreglan veitti henni í fyrst áminningu og bað hana vinsamlegast um að hylja sig. Hún hlustaði ekki á fyrirmæli lögreglu og sagði sundfötin vera listtjáningu.
Í kjölfarið sektaði lögreglan hana fyrir að taka erótískar og klámfengnar myndir, en ekki eru til lög þar sem ná yfir óviðeigandi klæðaburð. Sektin hljóðaði upp á rúmar 6.300 íslenskar krónur.