Kínversk stjórnvöld neita því að þau hafi krafist þess af NBA-deildinni að framkvæmdastjóri Houston Rockets, Daryl Morey, yrði rekinn úr starfi. Mikil spenna hefur myndast eftir að Morey setti stuðningsyfirlýsingu til mótmælenda í Hong Kong á Twitter í byrjun mánaðarins.
Mótmæli hafa staðið yfir reglulega í Hong Kong síðan snemma í júní og hefur ofbeldi færst í aukana undanfarið. Upphaf þeirra má rekja til lagafrumvarps, sem kynnt var í apríl, sem heimila átti framsal meintra brotamanna til meginlands Kína. Þau þróuðust síðan í ákall um auknar lýðræðisumbætur og að kínversk stjórnvöld létu sjálfsstjórnarborgina afskiptalausa.
„Berjist fyrir frelsi, standið með Hong Kong,“ skrifaði Morey í færslunni umdeildu sem var fjarlægð fljótlega eftir birtingu.
NBA-liðin Los Angeles Lakers og Brooklyn Nets léku sýningarleiki í Kína skömmu eftir færslu Morey. Ýmsum viðburðum í tengslum við leikina var aflýst og þá hætti kínverska ríkissjónvarpsstöðin CCTV við að sýna leikinn í beinni útsendingu.
Þá drógu ýmsir kínverskir styrktaraðilar úr stuðningi við NBA-deildina en tap deildarinnar af þeim sökum er mikið.
Adam Silver, framkvæmdastjóri NBA-deildarinnar, greindi frá því í gær að kínversk stjórnvöld hefðu óskað eftir því að Morey yrði látinn fjúka.
Geng Shuang, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins, sagði þarlendum fréttamönnum í morgun að Silver færi ekki með rétt mál. „Kínverska ríkisstjórnin hefur aldrei farið fram á slíkt.“