Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum að varir fólks á samfélagsmiðlum virðast fara stækkandi. Fólk er orðið óhræddara við að láta sprauta fylliefnum í varirnar en nauðsynlegt er að slíkar aðgerðir séu framkvæmdar af fagaðilum. Ekki vilja allir þó grípa til svo róttækra aðgerða, enda auðvelt að skerpa á útlínum varanna og auka umfang þeirra með réttu förðunarvörunum.
Skrúbbaðu varirnar
Notaðu varaskrúbb eða volgan þvottapoka til að fjarlægja dauðar húðfrumur af vörunum og örva blóðflæði þeirra. Auðvelt er að gera sinn eiginn varaskrúbb með því að blanda saman sykri og shea-smjöri eða nærandi olíu.
Varasalvi sem sléttir varirnar og húðina í kring
Margir varasalvar eru í boði en gott er að nota örvandi formúlu sem mýkir varirnar, gerir þær fyllri ásýndar og vinnur gegn öldrun húðarinnar. Prófaðu Collagenist Re-Plump Lip Zoom frá Helena Rubinstein sem er sérstaklega hugsuð til að örva framleiðslu húðarinnar á kollageni sem stuðla að aukinni þéttni húðarinnar. Útlínur varanna verða þrýstnari og varirnar mýkri en einnig mýkir formúlan ásýnd hrukkna í kringum varirnar.
Notaðu langvarandi varalitablýant
Varalitablýantur er lykilatriði þegar kemur að mótun varanna og nú er hægt að fá langvarandi formúlur svo mótun varanna endist talsvert lengur. Reyndu að finna lit sem er svipaður þeim litatón sem einkennir varir þínar. Einn vinsælasti varalitablýanturinn til að móta varirnar, og litur sem virðist henta mörgum, er Lip Cheat-varalitablýanturinn frá Charlotte Tilbury í litnum Pillow Talk.
Aðrir varalitablýantar sem eru mjúkir og langvarandi eru til dæmis Urban Decay 24/7 Glide-On Lip Pencil og Chanel Le Crayon Lévres. Þegar rétti liturinn er fundinn skaltu lita alveg við ystu mörk varanna. Ef þú treystir þér til má fara aðeins út fyrir þá línu til að stækka varirnar.
Ljósari litur í miðjunni
Berðu varalit yfir allar varirnar og farðu svo með ljósari varalit yfir miðju varanna. Með þessu skaparðu ákveðna sjónhverfingu um þrýstnari varir. Einnig má nota gloss á miðjuhluta varanna til að gera þær þrýstnari ásýndar.
Skerptu á útlínunum með hyljara
Þegar þú hefur mótað varirnar með varalitablýanti og borið á þig varalit skaltu fara með lítinn bursta og smá hyljara í kringum varirnar. Þetta gerir varirnar enn meira áberandi.
Fylgstu með á samfélagsmiðlunum:
Instagram: @Snyrtipenninn
Facebook: Snyrtipenninn