Samráðsnefnd um fiskeldi

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, hef­ur skipað sam­ráðsnefnd um fisk­eldi. Nefnd­in er skipuð á grund­velli laga sem Alþingi samþykkti ný­verið en henni er ætlað að vera stjórn­völd­um til ráðgjaf­ar vegna mál­efna fisk­eld­is.

Þetta kem­ur fram á vef Stjórn­ar­ráðsins.

Þar kem­ur fram að nefnd­inni beri að taka til um­fjöll­un­ar mál sem snerta fisk­eldi, meðal ann­ars að leggja mat á for­send­ur og úr­vinnslu þeirra gagna sem áhættumat erfðablönd­un­ar bygg­ist á.

Í nefnd­inni eiga sæti full­trú­ar frá um­hverf­is- og auðlind­ar­ráðuneyt­inu, Lands­sam­bandi veiðifé­laga, Sam­tök­um fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, Haf­rann­sókna­stofn­un og Sam­bandi ís­lenskra sveita­fé­laga. Þá skip­ar sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra formann nefnd­ar­inn­ar.

Nefnd­in er skipuð til fjög­urra ára og er þannig skipuð:

Aðal­menn:

  • Kristján Skarp­héðins­son ráðuneyt­is­stjóri, án til­nefn­ing­ar, formaður.
  • Bjarni Jóns­son, til­nefnd­ur af um­hverf­is- og auðlindaráðuneyti.
  • Guðrún Sig­ur­jóns­dótt­ir, til­nefnd af Lands­sam­bandi veiðifé­laga.
  • Heiðrún Lind Marteins­dótt­ir, til­nefnd af Sam­tök­um fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi.
  • Ragn­ar Jó­hanns­son, til­nefnd­ur af Haf­rann­sókna­stofn­un.
  • Sig­ríður Ólöf Kristjáns­dótt­ir, til­nefnd af Sam­bandi ís­lenskra sveit­ar­fé­laga.

 Vara­menn:

  • Unn­ur Brá Kon­ráðsdótt­ir, án til­nefn­ing­ar
  • Álf­heiður Inga­dótt­ir, til­nefnd af um­hverf­is- og auðlindaráðuneyti.
  • Elías Blön­dal Guðjóns­son, til­nefnd­ur af Lands­sam­bandi veiðifé­laga.
  • Kristján Þór­ar­ins­son, til­nefnd­ur af Sam­tök­um fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi.
  • Sól­veig Rósa Ólafs­dótt­ir, til­nefnd af Haf­rann­sókna­stofn­un.
  • Karl Óttar Pét­urs­son, til­nefnd­ur af Sam­bandi ís­lenskra sveit­ar­fé­laga.
mbl.is