Hollywood-stjörnurnar Jennifer Aniston og Reese Witherspoon eiga það sameiginlegt að æfa vel og huga vel að mataræðinu. Stöllurnar mættu saman í útvarpsviðtal á dögunum að því er fram kemur á vef Independent og greindu frá heilsuleyndarmálum sínum.
Eins og svo margir aðrir fastar Jennifer Aniston hluta dags og borðar ekki mat í 16 tíma á dag. Aniston segist ekki borða á morgnana. Segist hún hafa tekið eftir miklum breytingum eftir að hún hætti að borða mat í föstu formi hluta dags.
Reese Witherspoon segist fá góð heilsuráð frá vinkonu sinni Aniston en fær sér þó smá næringu á morgnana. Það mætti líklega líkja mataræði hennar við föstu en á morgnana fær hún sér aðeins sellerídjús og kaffi. Aniston viðurkenndi að fá sér líka stundum sellerídjús á morgnana.
Þrátt fyrir að margt sé keimlíkt við mataræði þeirra hefjast dagar þeirra á mismunandi tímum. Aniston segist helst ekki vilja vakna fyrr en klukkan níu en Witherspoon kemst ekki upp með slíkan lúxus. Witherspoon á sjö ára gamlan son sem vaknar hálfsex. Hún nýtur þó morgnanna vel og fer í ræktina klukkan hálfátta. Witherspoon segist æfa sex daga í viku en Aniston ekki nema fimm sinnum í viku.