Það er óhætt að segja að hátíðarlína Chanel komi fólki í jólaskap enda ávallt mikið um dýrðir. Mínar fyrstu minningar af snyrtivörum eru tengdar Chanel því ég fór gjarnan með mömmu að skoða nýjustu línurnar frá merkinu og fljótlega vissi ég nákvæmlega hver Gréta Boða væri. Mamma hélt uppteknin hætt í gær þegar hún spurði hvort ég vildi koma með henni í Glæsibæ á kynningu jólalínu Chanel, þetta er heilög stund hjá okkur mæðgum.
Í ár sækir Lucia Pica innblástur í fagurfræði barokksins og hátíðarlína Chanel nefnist Les Ornaments de Chanel. Gabrielle Chanel dáði prýðileika og þann mikla glæsileika sem einkenndi barokk-stílinn. Hátíðleiki og fágun einkennir þessa fallegu línu sem færir okkur snyrtivörur hugsaðar til að skapa birtu og auka aðdráttarafl, líkt og skartgripir.
Les Ornaments de Chanel býr yfir sex Rouge Allure-varalitum í einstökum umbúðum sem koma í takmörkuðu upplagi. Að sögn Lucia Pica eru það þessir varalitir sem skapa jafnvægi á milli mikilfengleika barokksins og nútímans.
Óhætt er að segja að Éclat Magnétique de Chanel sé ljómapúður sem stöðvar fólk í sporunum. Púðuragnirnar eru svo fínlega malaðar að þær verða nánast kremkenndar og sameinast húðinni náttúrulega. Ljóminn er þó mjög öflugur og verður þetta líklega ein eftirsóttasta snyrtivaran fyrir jólin.
Augnskuggar eru að sjálfsögðu áberandi innan línunnar og ber fyrst að nefna Les 4 Ombres þar sem fjórir satínkenndir augnskuggar koma saman í hátíðlegum litatónum sem þó henta vel við flest tilefni.
Tveir Chanel Ombre Premiére stakir aunskuggar eru í boði í ofboðslega fallegum litum. Fyrri í koparkenndum gulltóni og hinn í djúpum plómukenndum lit.
Hátíðarförðunin er svo toppuð með naglalökkum Chanel sem koma í rauðum litatóni og djúpgrænum.