Í hádeginu í dag höfðu tæplega þúsund starfsumsóknir borist flugfélaginu Play, en það kynnti í gær fyrstu áform sín um flugrekstur til og frá Íslandi. Þá hafa um 26 þúsund skráð sig á póstlista hjá félaginu, en það lofaði að gefa þúsund flugmiða þegar þeir færu í loftið.
Mbl.is greindi frá því í gær að félagið reiknaði með að ráða 200-300 manns fyrir næsta sumar, en félagið ætlar að hefja flug með tveimur Airbus A320 flugvélum í vetur og bæta svo við fjórum flugvélum fyrir næsta sumar.
Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að til standi að ráða fjölda starfsmanna á næstu vikum, bæði á skrifstofu og áhafnarmeðlimi.
Á vefsíðu félagsins þar sem óskað var eftir starfsumsóknum var í gær auglýst eftir „leikfélögum“ í störf þjónustufulltrúa. Í dag hefur því hins vegar verið breytt í þjónustuhetjur.